Nýherji og dótturfélögin Applicon og TM Software hafa sameinast undir nafninu Origo. Markmiðið með sameiningunni er að nýta styrkleika fyrirtækjanna þriggja til þess að skapa heildstætt framboð lausna í upplýsingatækni og efla þjónustu við viðskiptavini enn frekar, að því er segir í fréttatilkynningu frá félaginu.
Markaðsvirði félagsins, sem skráð er á markað, nemur 12,1 milljarði króna, miðað við gengi hlutabréfa félagsins við lokun markaða í dag.
Orðið Origo kemur úr latínu og merkir uppruni, upphaf eða uppspretta og er því við hæfi í upplýsingatækni, þar sem þróun og nýsköpun eru forsendur árangurs. „Nafnið á sér stutta sögu innan samstæðunnar, en Origo var eitt af dótturfyrirtækjum TM Software þegar Nýherji keypti félagið í byrjun árs 2008,“ segir í tilkynningu frá félaginu.
Lausnaframboð Origo mun ná til flestra sviða upplýsingatækni, svo sem hýsingar- og rekstrarþjónustu, eigin hugbúnaðarþróunar og -lausna frá samstarfsaðilum, viðskiptalausna og innviða upplýsingakerfa. Auk þess mun Origo selja búnað og lausnir til fyrirtækja og einstaklinga frá mörgum af fremstu framleiðendum heims.
„Þó að okkur hafi gengið vel með rekstur í aðskildum félögum teljum við mikla möguleika felast í sameiningu; með því að stilla upp heildstæðara lausnaframboði fyrir viðskiptavini, með markvissu markaðs- og sölustarfi, einfaldara skipulagi og auknu hagræði í rekstri,“ segir Finnur Oddsson forstjóri Origo. „Við viljum vera fyrsta val viðskiptavina í upplýsingatækni, skilja viðfangsefni þeirra, veita framúrskarandi þjónustu og bjóða snjallar lausnir, hvort sem þær eru okkar eigin eða frá öflugum samstarfsaðilum. Við höfum metnað fyrir því að viðskiptavinir okkar upplifi ekki eingöngu aukna breidd í starfsemi okkar, heldur einnig meira frumkvæði, nýsköpun og snerpu í þjónustunni, sem er nauðsynleg til að bregðast við þörfum atvinnulífsins í dag,“ segir Finnur.
Samruni Nýherja, Applicon og TM Software tók formlega gildi 1. janúar en hjá Origo starfa 440 manns, langflestir í Reykjavík en einnig á Akureyri, Egilsstöðum, Neskaupstað og Ísafirði.
Dótturfélög Origo eru Applicon Svíþjóð og Tempo. Hlutabréf Origo eru skráð í NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöll Íslands). Tekjur Origo árið 2017 námu um 12,5 milljörðum króna en tekjur samstæðunnar, með dótturfélögum, námu um 15 milljörðum.