Stöðugleikaeignir upp á 19 milljarða framseldar til LSR

Íslenska ríkið hefur framselt illseljanlegar eignir sem það fékk í stöðugleikaframlag upp í skuld sína við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Framlag ríkisins inn á skuldina í ár fer úr fimm milljörðum í 24 milljarða.

Bjarni Benediktsson
Auglýsing

Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur stað­fest að það hafi fram­selt eignir sem metnar eru á 19 millj­arða króna, og eru hluti af stöð­ug­leika­fram­lagi föllnu bank­anna, til Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR).

Kjarn­inn greindi frá því 3. jan­úar síð­ast­lið­inn að heim­ild hafi verið fyrir fram­sal­inu í fjár­­auka­lögum 2017, sem afgreidd voru á síð­­­ast starfs­degi Alþingis fyrir ára­­mót. Um er að ræða eignir sem Lind­­ar­hvoll ehf. hefur haft til umsýslu og ekki telj­­ast heppi­­legar til sölu á almennum mark­aði. Fram­sal eign­anna lækkar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar rík­­is­­sjóðs við B-deild LSR um áður­greinda upp­hæð.

Í frétt á heima­síðu ráðu­neyt­is­ins sem birt var í dag, segir að það hafi þótt skyn­sam­legt að þessum sökum að LSR myndi yfir­taka eign­irn­ar. Sjóð­ur­inn sé ekki háður sér­stökum tíma­tak­mörk­unum í eigna­um­sýslu sinni líkt og Lind­ar­hvoll og hann búi yfir sér­hæfðri þekk­ingu til að hámarka virði eign­anna.

Auglýsing
Sam­kvæmt upp­­lýs­ingum Kjarn­ans felst í þessu að ýmsir láns­­samn­ingar og óskráð hluta­bréf sem eru í umsýslu Lind­­ar­hvols, að frá­­­töldum hluta­bréfum í Lyfju sem er í opnu söl­­ferli, muni fær­­ast til LSR í þeim til­­­gangi að hámarka virði þeirra. Enn er stefnt að því að starf­­semi Lind­­ar­hvols, sem ann­­ars fulln­­ustu og sölu á stöð­ug­­leika­­eignum rík­­is­­sjóðs, verði slitið á fyrri hluta árs­ins 2018.

Við þessa ráð­­stöfun mun fram­lag til til sjóðs­ins hækka úr fimm millj­örðum króna í 24 millj­­arða króna á yfir­­stand­andi ári. Þessi greiðsla er þó fjarri því nægj­an­­leg til að B-deildin geti staðið við skuld­bind­ingar sín­­ar, en ófjár­­­magn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar rík­­is­­sjóðs eru 611 millj­­arðar króna.

Til að sam­ein­aður sjóður geti staðið við þær þyrftu árleg fram­lög rík­­is­­sjóðs til sjóðs­ins að vera sjö millj­­arðar króna á ári að jafn­­aði næstu 30 árin í stað þeirra fimm millj­­arða króna sem nú er ráð­stafað til þeirra á ári.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent