Þúsund einstaklingar eiga nær allt eigið fé einstaklinga í fyrirtækjum

Tiltölulega fáir einstaklingar eiga það eigið fé fyrirtækja sem tilheyrir einstaklingum.

peningar
Auglýsing

Til­­­tölu­­lega fáir eiga nær allt eigið fé ein­stak­l­inga í ís­­lensk­um fyr­ir­tækj­um, sam­­kvæmt sam­an­­tekt Cred­it­in­fo fyr­ir Við­skipta­Mogg­ann, sem fjallað er um í blaði dags­ins.

Um þús­und manns eiga ríf­lega 98 pró­sent alls eig­in fjár sem er í eigu ein­stak­l­inga. Hlut­ur­inn sem til­heyrir ein­stak­ling­um, sam­kvæmt sam­an­tekt Credit­in­fo, nemur um 1.200 millj­örðum króna. 

„Enn­frem­ur sést þegar rýnt er í töl­­urn­ar að tíu eigna­­mestu ein­stak­l­ing­ar lands­ins eiga tæp­­lega þriðj­ung alls eig­in fjár í ís­­lensk­um fé­lög­um, sem er í hönd­um ein­stak­l­inga,“ segir í umfjöllun Við­skipta­Mogg­ans.

Auglýsing
Það þýðir að þeir tíu rík­ustu eiga um 400 millj­arða, sam­kvæmt upp­lýs­ing­unum sem vitnað er til.

Mis­skipt­ing auðs hefur auk­ist

Kjarn­inn hefur fjallað ítar­lega um skipt­ingu gæða í íslensku sam­fé­lagi á und­an­förnum árum. Í októ­ber greindi hann frá því að þær rúm­lega 20 þús­und fjöl­skyldur sem til­heyra þeim tíu pró­sentum þjóð­ar­innar sem eiga mest eigið fé – eignir þegar skuldir hafa verið dregnar frá – áttu 2.062 millj­arða króna í hreinni eign í lok árs 2016. Alls átti þessi hópur 62 pró­sent af öllu eigin fé í land­inu á þeim tíma. Eigið fé hans jókst um 185 millj­arða króna á árinu 2016. Eigið fé hinna 90 pró­sent lands­manna jókst á sama tíma um 209 millj­arða króna. Það þýðir að tæp­lega helm­ingur þeirrar hreinu eignar sem varð til á árinu 2016 fór til tíu pró­sent efna­mestu fram­telj­end­anna.

Þegar eigið fé 20 pró­sent efna­mestu fjöl­skyldna þjóð­ar­innar var skoðað kom í ljós að sá hópur átti 85 pró­sent af öllu eigið fé í land­inu. Sá helm­ingur þjóð­ar­innar sem átti minnst var sam­an­lagt með nei­kvætt eigið fé upp á 175,3 millj­arða króna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent