MS ásakar Samkeppniseftirlitið um óhlutlægni

Mjólkursamsalan segir í tilkynningu að Samkeppniseftirlitið fjalli ekki um málefni MS og mjólkuriðnaði af þeirri hlutlægni sem gerða verði kröfu um til ríkisstofnunar.

Mjólk
Auglýsing

„Ljóst er af afskiptum sam­keppn­is­yf­ir­valda af mál­efnum mjólkur­iðn­að­ar­ins, að Sam­keppn­is­eft­ir­litið fjallar ekki um mál­efni MS og mjólkur­iðn­að­ar­ins af þeirri hlut­lægni, sem gera verður kröfu um til stofn­unar á vegum rík­is­ins,“ segir í frétta­til­kynn­ingu frá Mjólk­ur­sam­söl­unni.

Í til­kynn­ing­unni sem ber tit­il­inn „Mála­rekstur sem fær ekki stað­ist“ fjallar Mjólk­ur­sam­salan um mála­rekstur Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins gegn MS en eft­ir­litið hefur höfðað dóms­mál gegn MS til ógild­ingar á úrskurði áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála.

MS segir að enda þótt mjólkur­iðn­að­ur­inn hafi heim­ild til sam­starfs á grund­velli búvöru­laga sé hann ekki und­an­þeg­inn banni sam­keppn­islaga við mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu. „Sam­keppn­is­eft­ir­litið heldur því fram í máls­höfðun sinni að MS hafi brotið gegn bann­inu en áfrýj­un­ar­nefndin talið að ákvæði búvöru­laga veittu und­an­þágu frá bann­regl­unni. Eng­inn fótur er fyrir þess­ari túlkun því nið­ur­staðan byggð­ist á að engin mis­notkun hefði átt sér stað. Áfrýj­un­ar­nefndin úrskurð­aði að fram­kvæmd sam­starfs­ins hefði verið mál­efna­leg og for­svar­an­leg,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

MS heldur því fram að fram­ganga fyr­ir­tæk­is­ins á mark­aði hafi verið í sam­ræmi við efn­is­reglur sam­keppn­islaga og ann­arra laga. Síend­ur­teknar full­yrð­ingar stjórn­endar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um annað hafi ekki stað­ist. Aug­ljóst sé að stjórn­endur þess séu ósáttir við það fyr­ir­komu­lag sem lög­gjaf­inn hafi ákveðið að hafa á mjólk­ur­mark­aði en þeim beri eins og öðrum í sam­fé­lag­inu að virða gild­andi lög.

Klofin áfrýj­un­ar­nefnd felldi megnið af sekt­inni úr gildi

Sam­keppn­is­eft­ir­litið lagði 440 millj­­óna króna sekt á MS vegna máls­ins í júlí árið 2016, vegna þess að fyr­ir­tækið hefði mis­­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með því að selja keppi­­nautum sínum hrá­­mjólk á óeðli­­lega háu verði á sama tíma og fyr­ir­tækið sjálft og tengdir aðilar fengu sama hrá­efni undir kostn­að­­ar­verði. Nið­­ur­­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins var að þetta hefði veitt MS og tengdum aðilum veru­­legt sam­keppn­is­­for­­skot og geta keppi­­nauta hafi verið skert með alvar­­legum hætti. Það væri á end­­anum fallið til þess að skaða hags­muni neyt­enda og bænda.

MS skaut mál­inu til áfrýj­un­­ar­­nefndar sam­keppn­is­­mála, sem komst að þeirri nið­­ur­­stöðu að und­an­þág­u­á­­kvæði í búvöru­lögum hefðu vikið banni sam­keppn­islaga við mis­­­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu til hlið­­ar. Sektin var felld úr gildi, en nefndin stað­­festi að MS hefði framið alvar­­legt brot með því að halda upp­­lýs­ingum frá yfir­­völd­um, og fyr­ir­tækið ætti að greiða 40 millj­­óna sekt vegna þess. Áfrýj­un­­ar­­nefndin klofn­aði í afstöðu sinni til máls­ins.

Nauð­syn­legt að fá nið­ur­stöðu um sam­spil búvöru- og sam­keppn­islaga

Í frétta­til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu sem fylgdi í kjöl­far þeirri frá MS kemur frma að Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafi í dag hafnað kröfu MS um að mál­inu yrði vísað frá dómi.

„Hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið talið að mik­il­vægt væri fyrir hags­muni smærri fram­leið­enda, bænda og neyt­enda að fá úr þessu skor­ið. Úrskurð­ur­inn felur í sér að málið fær nú efn­is­með­ferð fyrir hér­aðs­dómi.“

Eft­ir­litið segir að eftir skoðun á for­sendum úrskurðar meiri­hluta áfrýj­un­ar­nefndar hafi það talið nauð­syn­legt að stefna MS til þess að fá nið­ur­stöð­unni hnekkt um sam­spil búvöru­laga og sam­keppn­islaga. „Miðar sú máls­höfðun að því að fá úr því skorið hvort bann sam­keppn­islaga við mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu taki að fullu til MS. Jafn­framt verði fengin fulln­að­ar­úr­lausn um hvort fyr­ir­tækið skuli sæta fullri ábyrgð vegna þeirrar hátt­semi sem fjallað er um í mál­inu og Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur metið sem alvar­leg brot gegn minni keppi­naut­um. Mun Sam­keppn­is­eft­ir­litið krefj­ast þess að MS greiði þá stjórn­valds­sekt sem eft­ir­litið taldi hæfi­lega í ákvörðun sinni frá júlí 2016,“ segir í til­kynn­ingu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent