Stefnt er að því að mat á áhrifum og kostnaði af tillögum nefndarinnar verði lokið innan þriggja til fjögurra mánaða og jafnframt verði á því tímabili aflað frekari gagna og upplýsinga um stöðu fjölmiðlamála.
Þetta kemur fram svari mennta- og menningarmálaráðuneytisins við fyrirspurn Kjarnans.
Að því loknu verði hafist handa við stefnumótun ríkisins í fjölmiðlamálum sem leiðir til ákvörðunar um forsendur og fyrirkomulag við hugsanlegan stuðning ríkisins við lýðræðis- og menningarhlutverk fjölmiðla. Áætlað er að niðurstöður liggi fyrir í haust.
Nefnd um rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum og afhenti skýrslu sína í gær. Í skýrslunni er ítarleg umfjöllun um stöðu fjölmiðla bæði hér á landi og erlendis og útskýrt að rekstrarerfiðleika megi helst rekja til breyttra forsendna til tekjuöflunar. Nefndin gerir tillögur um aðgerðir í sjö liðum sem gætu bætt rekstrarskilyrði fjölmiðla.
Þær snúa meðal annars að stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði, skattalegu umhverfi, textun og talsetningu og endurgreiðslu framleiðslukostnaðar á fréttum og fréttatengdu efni. Þá er einnig ítarleg samantekt um opinberan stuðning við fjölmiðla í helstu nágrannaríkjum auk sérálits tveggja nefndarmanna.
Þetta kom fram í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Mennta- og menningarmálaráðherra fagnar tillögum og greinargerð nefndarinnar og telur þær mjög gagnlegar við frekari undirbúning aðgerða af hálfu stjórnvalda til að styrkja rekstrargrundvöll frjálsra fjölmiðla á Íslandi, segir í tilkynningunni. Jafnframt segir að í skýrslunni sé dregið skýrt fram að áskoranir í rekstri fjölmiðla eru ekki eingöngu bundnar við Ísland heldur eru einnig viðfangsefni stjórnvalda í nágrannaríkjum okkar.
„Nefndin lagði ekki sérstakt mat á hvaða áhrif hver tillaga hefði á rekstur ríkissjóðs. Að mati ráðherra er nauðsynlegt að kostnaðarmat liggi fyrir áður en ákvarðanir eru teknar um til hvaða aðgerða skal grípa og útfærslur á þeim. Ljóst er hins vegar að hægt er að bregðast fljótt við tillögu um lækkun virðisaukaskatts og mun ráðherra óska eftir því að nú þegar verði athugað hvort hægt sé að samræma álagningu virðisaukaskatts á fjölmiðla þannig að hann verði í öllum tilvikum í neðra þrepi.
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að setja strax af stað frekari stefnumótun innan ráðuneytisins um stöðu fjölmiðlunar hér á landi. Þar verða áhrifin metin af fyrirhuguðum aðgerðum. Leitað verður eftir samvinnu og samstarfi við hagsmunaaðila, stjórnmálaflokka og almenning. Markmiðið er að ná breiðri sátt um starfsemi fjölmiðla og hugsanlega aðkomu ríkisins að lýðræðis- og menningarhlutverki þeirra,“ segir í tilkynningunni.