Fjármálaeftirlitið hefur sent frá sér aðvörun til almennings um sýndarfé og þeirri miklu áhættu sem fylgir viðskiptum með slíkt fé. Í tilkynningunni segir að verð á sýndarfé, eins og Bitcoin, hafi sveiflast gríðarlega undanfarið ár og hafi miklar lækkanir fylgt í kjölfarið á miklum hækkunum.
Bitcoin fylgi lögmálum spákaupmennsku og sé mjög áhættusamt. Þeir sem kaupi sýndarfé eigi á hættu að tapa stórum hluta fjárfestingar sinnar.
Fjármálaeftirlitið segir að meðal áhættuþátta sem fylgi sýndarfé séu þeir að engin neytendavernd sé í gildi þar sem engar reglur gildi á markaði með sýndarfé. Þannig sé féð ekki viðurkenndur lögeyrir eða gjaldmiðill samkvæmt íslenskum lögum. Þá fellur slíkur gjaldmiðill hvorki undir ákvæði laga um greiðsluþjónustu né ákvæði laga um útgáfu og meðferð rafeyris. Þó að þetta sé meðal þess sem gerir markaðinn með sýndarfé spennandi hefur það jafnframt í för með sér að neytendur njóta ekki þeirrar verndar sem fjármálamarkaður og framangreind lög veita.
Þá sýni markaður með sýndarfé skýr merki um bólumyndun þar sem verð er mjög sveiflukennt og ekki tengt undirliggjandi eignum. Markaðir með sýndarfé þurfi ekki starfsleyfi, falla ekki undir lög um verðbréfaviðskipti og lúti ekki eftirliti Fjármálaeftirlitsins. Verðgagnsæi hafi verið ábótavant á þessum mörkuðum og sumir þeirra hafi lenti í rekstrarvanda, sem tild dæmis hafi leitt til stöðvunar viðskipta. Að auki sé sýndarfé ekki stutt af undirliggjandi eignum né af Seðlabönkum og hafi þannig engan bakhjarl.
Fjármálaeftirlitið varar neytendur við að fjárfesta í sýndarfé og hætta þannig fjármunum sem þeir mega ekki við því að tapa nema að mjög vel athuguðu máli.