FME varar almenning við Bitcoin

Fjármálaeftirlitið varar almenning við þeirri miklu áhættu sem fylgir viðskiptum með sýndarfé.

Bitcoin
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur sent frá sér aðvörun til almenn­ings um sýnd­arfé og þeirri miklu áhættu sem fylgir við­skiptum með slíkt fé. Í til­kynn­ing­unni segir að verð á sýnd­ar­fé, eins og Bitcoin, hafi sveifl­ast gríð­ar­lega und­an­farið ár og hafi miklar lækk­anir fylgt í kjöl­farið á miklum hækk­un­um.

Bitcoin fylgi lög­málum spá­kaup­mennsku og sé mjög áhættu­samt. Þeir sem kaupi sýnd­arfé eigi á hættu að tapa stórum hluta fjár­fest­ingar sinn­ar.

Fjár­mála­eft­ir­litið segir að meðal áhættu­þátta sem fylgi sýnd­arfé séu þeir að engin neyt­enda­vernd sé í gildi þar sem engar reglur gildi á mark­aði með sýnd­ar­fé. Þannig sé féð ekki við­ur­kenndur lög­eyrir eða gjald­mið­ill sam­kvæmt íslenskum lög­um. Þá fellur slíkur gjald­mið­ill hvorki undir ákvæði laga um greiðslu­þjón­ustu né ákvæði laga um útgáfu og með­ferð raf­eyr­is. Þó að þetta sé meðal þess sem gerir mark­að­inn með sýnd­arfé spenn­andi hefur það jafn­framt í för með sér að neyt­endur njóta ekki þeirrar verndar sem fjár­mála­mark­aður og fram­an­greind lög veita.

Auglýsing

Þá sýni mark­aður með sýnd­arfé skýr merki um bólu­myndun þar sem verð er mjög sveiflu­kennt og ekki tengt und­ir­liggj­andi eign­um. Mark­aðir með sýnd­arfé þurfi ekki starfs­leyfi, falla ekki undir lög um verð­bréfa­við­skipti og lúti ekki eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Verð­gagn­sæi hafi verið ábóta­vant á þessum mörk­uðum og sumir þeirra hafi lenti í rekstr­ar­vanda, sem tild dæmis hafi leitt til stöðv­unar við­skipta. Að auki sé sýnd­arfé ekki stutt af und­ir­liggj­andi eignum né af Seðla­bönkum og hafi þannig engan bak­hjarl.

Fjár­mála­eft­ir­litið varar neyt­endur við að fjár­festa í sýnd­arfé og hætta þannig fjár­munum sem þeir mega ekki við því að tapa nema að mjög vel athug­uðu máli.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent