Tólf aðildarfélög Bandalags háskólamanna (BHM) hafa undirritað nýja kjarasamninga við ríkið. Um er að ræða Dýralæknafélag Íslands (DÍ), Félag íslenskra félagsvísindamanna (FÍF), Félag lífeindafræðinga (FL), Félag sjúkraþjálfara (FS), Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins (FHSS), Félagsráðgjafafélag Íslands (FÍ), Fræðagarð (FRG), Iðjuþjálfafélag Íslands (IÞÍ), Sálfræðingafélag Íslands (SÍ), Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga (SBU), Stéttarfélag lögfræðinga (SL) og Þroskaþjálfafélag Íslands (ÞÍ). Gildistími samninganna er frá 1. september 2017 til 31. mars 2019.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá BHM, en um þrettán þúsund félagsmenn eru í 27 fag- og stéttarfélögum háskólamenntaðs fólks sem heyra undir BHM.
Allir samningar félaganna voru undirritaðir með fyrirvara um samþykki félagsmanna en á næstunni verða efnisatriði þeirra kynnt innan félaganna og þeir síðan bornir undir atkvæði.
Ekki verður upplýst um efnisatriði samninganna fyrr en þeir hafa verið kynntir félagsmönnum, að því er segir í tilkynningu.
Sem kunnugt er hafa samningar sautján aðildarfélaga BHM við ríkið verið lausir frá því sl. haust.
Enn eiga tvö aðildarfélög í beinum viðræðum við samninganefnd ríkisins: Félag geislafræðinga (FG) og Félag íslenskra leikara (FÍL). Þrjú félög hafa vísað kjaradeilu sinni við ríkið til ríkissáttasemjara: Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH), Félag íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) og Ljósmæðrafélag Íslands (LMFÍ).