Lindarhvoll, sem stofnað var til að annast umsýslu og sölu stöðugleika eigna sem ríkið fékk afhent í kjölfar samkomulags við kröfuhafa föllnu bankanna, hefur lokið hlutverki sínu og verður slitið. Alls nemur andvirði þeirra stöðugleikaeigna sem búið er að innleysa um 207,5 milljörðum króna en frátalin eru framlög vegna viðskiptabankanna Arion banka og Íslandsbanka og aðrar óinnleystar eignir.
Lindarhvoll samþykkti að selja Lyfju hf. til félagsins SID ehf., í eigu SIA III slhf., Þarabakka ehf. og Kasks ehf., á mánudag. SID hafði átt hæsta tilboðið í opnu söluferli fyrirtækisins. Kaupsamningurinn er gerður með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Kaupveðrið hefur ekki verið gefið upp.
Í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu segir að þar með sé ráðstöfun stöðugleika í umsýslu Lindarhvols lokið. „Félagið hefur með sölunni komið langstærstum hluta þeirra eigna sem því var falin umsýsla með í laust fé. Samkomulag er um það milli stjórnar Lindarhvols og fjármála- og efnahagsráðuneytisins að fella við svo búið niður samning sem ráðuneytið gerði við félagið í apríl 2016 um úrvinnslu og umsýslu stöðugleikaeigna frá og með 7. febrúar. Í kjölfarið verður Lindarhvoli ehf. slitið.“
Þær stöðugleikaeignir sem eftir standa eru, samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins, þess eðlis að virði þeirra verður best innheimt með tíð og tíma. „ Að stærstum hluta er um að ræða kröfur í þrotabú og önnur innheimtumál, lánasamninga, fjársópseignir og skuldabréf Kaupþings, auk afkomuskiptasamnings sem tengist sölu á Arion banka. Umsýslu og eftirliti með umræddum eignum verður áfram sinnt í umboði ríkissjóðs og mun andvirði þeirra skila sér inn á stöðugleikareikning ríkissjóðs við fullnustu. Til viðbótar eru nokkrar óverulegar stöður í óskráðum hlutabréfum og verður umsýslu þeirra komið fyrir í höndum viðeigandi ríkisaðila.“