Fjármálaráðuneytið hyggst leggja fram lagafrumvarp um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki til að bregðast við athugasemdum sem fram komu í rökstuddu áliti ESA (Eftirlitsstofnunar EFTA) um að íslensk stjórnvöld hafi ekki innleitt þrjú ákvæði tilskipunar um endurskipulagningu og slitameðferð lánastofnana með fullnægjandi hætti í íslenskum rétti.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu þar sem segir að gert sé ráð fyrir frumvarpinu á yfirstandandi þingi og sé frumvarpið á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar.
Um er að ræða þrjár undantekningar frá einni aðal meginreglu tilskipunarinnar um að lög heimaríkis lánastofnunar gildi um endurskipulagningu eða slitameðferð hennar. Þessar þrjár undantekningar sem um ræðir eru réttur til skuldajafnaðar, greiðslujöfnunarsamningar og löggerningar sem eru lánadrottnum skaðlegir. Ákvæðin hafa verið innleidd í lög um fjármálafyrirtæki en álit ESA er að ekki hafi verið staðið að innleiðingunni með fullnægjandi hætti.