Hlutabréf í Marel rjúka upp í fyrstu viðskiptum – Hækkuðu um tæp tíu prósent

Markaðsvirði Marel hefur aukist um tugi milljarða á innan við klukkutíma.

Árni Oddur Þórðarson er forstjóri Marel.
Árni Oddur Þórðarson er forstjóri Marel.
Auglýsing

Virði hluta­bréfa í Marel hækk­aði um tíu pró­sent í fyrstu við­skiptum í morg­un. Gengi bréfa félags­ins hefur rokið upp úr 341 krónum á hlut í 375 krónur á hlut í alls 370 millj­óna króna við­skipt­um. Þetta þýddi að klukkan korter í tíu í morgun var mark­aðsvirði Marel orðið 260 millj­arðar króna og hafði auk­ist um 26 millj­arða króna á innan við klukku­tíma. Marel er lang­verð­mætasta félagið í íslensku kaup­höll­inni.

Þegar þessi frétt er skrifuð nemur hækk­unin 8,5 pró­sentum í alls 482 millj­óna króna við­skipt­um.


Ástæðan er ein­föld: Marel birti upp­gjör sitt vegna árs­ins 2017 í gær. Þar kom fram að hagn­aður þess hafi verið 12,1 millj­arðar króna á síð­asta ári og að til standi að greiða hlut­höfum 3,6 millj­arða króna í arð.

Í til­kynn­ingu sem Marel sendi frá sér til Kaup­hallar í gær kom auk þess fram að félagið ætli sér að kanna þann mögu­leika að skrá bréf félags­ins í kaup­höll erlend­is. 

Auglýsing
Þar sagði: „Frá því Marel var skráð í íslenskri kaup­höll árið 1992 hefur félag­ið, með góðum stuðn­ingi hlut­hafa, vaxið að með­al­tali rúm­lega 20 pró­sent á ári og skapað mikil verð­mæti. Á grund­velli metn­að­ar­fullrar stefnu félags­ins og áformum um fram­tíð­ar­vöxt mun Marel kanna mögu­leika á skrán­ingu félags­ins í kaup­höll erlend­is. Mun félagið leita lið­sinnis óháðra alþjóð­legra ráð­gjafa við þá vinnu og grein­ingu á helstu skrán­ing­ar­kost­u­m.“

Stærsti eig­andi Marel eru Eyrir Invest með 25,88 pró­sent eign­ar­hlut. Þar á eftir koma þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, LSR og Gildi með sam­tals 21,51 pró­sent eign­ar­hlut. Félagið á auk þess 5,68 pró­sent í sjálfu sér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent