Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hefur ákveðið að leita eftir framboðum áhugasamra um setu í stjórnum félaga með stuðningi sjóðsins. Í frétt frá sjóðnum segir að ákvörðunin hafi verið tekin í takti við þær breytingar sem hafi verið að gerast undanfarin misseri varðandi opnari og gagnsærri stjórnarhætti í samfélaginu, og stefnu lífeyrissjóðsins.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna er næst stærsti lífeyrissjóður landsins. Eignir sjóðsins námu 603,2 milljörðum króna í lok árs 2016. Hann er einn stærsti eigandi innlendra hlutabréfa, en slík eign var 22 prósent af heildareign sjóðsins í árslok 2016.
Lífeyrissjóðurinn er meðal annars stærsti einstaki eigandi Icelandair (14,69 prósent eignarhlutur) og næst stærsti eigandinn í Marel (9,44 prósent beinn eignarhlutur). Hann er stærsti eigandi fasteignafélaganna Eikar (10,47 prósent eignarhlutur) og Regins (12,88 prósent eignarhlutur) og næst stærsti eigandi fasteignafélagsins Reita (14,08 prósent eignarhlutur).
Þá er sjóðurinn stærsti eigandi Símans (12,47 prósent eignarhlutur) og stór hluti í fjarskiptafyrirtækinu Vodafone (10,87 prósent). Hann á stærsti einstaki eigandinn í tveimur tryggingafélögum, Tryggingamiðstöðinni (9,99 prósent eignarhlutur) og VÍS (9,99 prósent eignarhlutur). Þá er hann næst stærsti eigandi HB Granda (13,66 prósent eignarhlutur), stærsti eigandinn í N1 (13,30 prósent eignarhlutur), næst stærsti eigandi Eimskipa (13,89 prósent), á meðal stærstu eigenda Haga (5,65 prósent eignarhlutur) og næst stærsti eigandi Origo/Nýherja (10,05 prósent).
Í frétt á vef sjóðsins segir að Lífeyrissjóður verzlunarmanna hafi sem hluthafi í félögum rétt til að styðja frambjóðendur til stjórnarsetu í félögunum. „Einkum er um að ræða skráð hlutafélög, en einnig getur verið um að ræða önnur félög. Lífeyrissjóðurinn leggur áherslu á að stjórnir þeirra félaga sem hann fjárfestir í séu sem best skipaðar og stuðla þannig að góðum rekstri til lengri tíma litið.
Valnefnd, sem skipuð er formanni stjórnar, varaformanni, framkvæmdastjóra og ráðgjafa frá Intellecta, metur umsóknir og leggur fyrir stjórn tillögu um hvaða umsækjanda sjóðurinn styðji. Stjórn lífeyrissjóðsins ákveður síðan hvern skuli styðja til stjórnarsetu.
Stjórn sjóðsins hefur samþykkt reglur um val frambjóðenda til setu í framangreindum stjórnum. Reglunum er ætlað að gera áhugasömum aðgengilegra að leita eftir stuðningi sjóðsins til stjórnarsetu og stækka þann hóp sem Lífeyrissjóður verzlunarmanna getur leitað til í þeim efnum.“