Breytingar á eignarhaldi Kjarnans - Ágúst Ólafur úr hluthafahópnum

Móðurfélag Kjarnans hefur keypt hlut Ágúst Ólafs Ágústssonar í miðlinum. Fanney Birna Jónsdóttir aðstoðarritstjóri hefur bæst við hluthafahópinn.

Kjarnamynd
Auglýsing

Kjarn­inn miðlar ehf., móð­ur­fé­lag Kjarn­ans, hefur keypt allt hlutafé Ágústs Ólafs Ágústs­son­ar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, í félag­inu. Um er að ræða 6,25 pró­sent hlut.

Ágúst Ólafur keypti hlut í Kjarn­anum árið 2014. Á þeim tíma var hann ekki þátt­tak­andi í stjórn­mál­um. Hann sat enn fremur í stjórn mið­ils­ins um tíma. Í sept­em­ber 2017 til­kynnti Ágúst Ólafur að hann ætl­aði að hefja stjórn­mála­þátt­töku að nýju og vék hann sam­stundis úr stjórn Kjarn­ans, enda var það mat stjórn­enda Kjarn­ans, Ágústs Ólafs og ann­arra hlut­hafa að ekki færi saman að vera kjör­inn full­trúi og eiga hlut í fjöl­miðli. Sam­hliða var gert sam­komu­lag um að Ágúst Ólafur yrði með öllu óvirkur eig­andi í félag­inu og að hlutur hans yrði settur í sölu­ferli. Greint var frá þessu opin­ber­lega á sínum tíma.Fanney Birna Jónsdóttir, aðstoðarritstjóri Kjarnans.

Nú er því ferli lokið með ofan­greindri nið­ur­stöðu. Þá hefur Fanney Birna Jóns­dótt­ir, aðstoð­ar­rit­stjóri Kjarn­ans, bæst í hlut­hafa­hóp­inn.

Í fjöl­miðlum hefur verið fjallað um að hlutur Ágústs Ólafs Í Kjarn­anum hafi auk­ist milli áranna 2017 og 2018. Það gerð­ist í kjöl­far þess að hlut­haf­a­lán, sem veitt var vegna fjár­fest­inga á fyrri hluta árs­ins 2017, var breytt í hlutafé í byrjun árs 2018. Því átti sú aðgerð sér stað tölu­vert áður en Ágúst Ólafur til­kynnti um þátt­töku í stjórn­málum og náði kjöri sem þing­mað­ur. Fjöl­miðla­nefnd hefur verið til­kynnt um breyt­ing­arnar líkt og lög gera ráð fyr­ir.

Auglýsing

Eign­ar­hald Kjarn­ans er eft­ir­far­andi:

Hjalti Harð­ar­son, 7,86%

Fanney Birna Jóns­dótt­ir, 0,97%

Magnús Hall­dórs­son, 11,71%

Þórður Snær Júl­í­us­son, 10,36%

Birgir Þór Harða­son, 2,46%

Jónas Reynir Gunn­ars­son, 2,46%

Kjarn­inn miðlar ehf., 6,25%

HG80 ehf., í eigu Hjálm­ars Gísla­son­ar, 18,28%

Mið­eind ehf., í eigu Vil­hjálms Þor­steins­son­ar, 17,80%

Birna Anna Björns­dótt­ir, 12,20%

Fagri­skógur ehf., í eigu Stef­áns Hrafn­kels­son­ar, 4,83%

Milo ehf., í eigu Gumma Haf­steins­sonar og Eddu Haf­steins­dótt­ur, 4,83%

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent