Róbert Wessman, Árni Harðarson og Magnús Jaroslav Magnússon voru í dag dæmdir til að greiða Matthíasi Johannessen 640 milljónir króna í Hæstarétti Íslands. Málið snýst um það að mennirnir fjórir keyptu saman fjárfestingafélagið Aztiq Pharma Partners sem átti í gegnum dótturfélög 30 prósent hlut í lyfjafyrirtækinu Alvogen. Róbert átti langstærstan hluta í félaginu, eða um 94 prósent. Hinir mennirnir áttu tvö prósent hver.
Sumarið 2010 var eign Aztiq Pharma Partners í Alvogen seld til annars félags á nafnvirði. Það félag var í eigu Árna Harðarsonar. Matthías taldi að með þessu hefðu hinir mennirnir þrír hlunnfarið sig á saknæman og ólöglegan hátt og fór fram á að þeir greiddu sér 3,1 milljarð króna. Varakrafa hans hljóðaði upp á 640 milljónir króna og féllst Hæstiréttur á hana. Til viðbótar til þá upphæð munu vextir reiknast á upphæðina frá sumrinu 2010 og dráttarvextir frá árinu 2011.
Í dómi Hæstaréttar segir að eignarhluturinn í dótturfélaginu, sem hélt á 30 prósent hlut í Alvogen, hefði verið seldur á undirverði og að mönnunum hafi mátt vera fullljóst „að með þeirri ráðstöfun hefðu hagsmunir eins hluthafa í félaginu með ótilhlýðilegum hætti verið teknir fram yfir hagsmuni félagsins og þar með annarra hluthafa.“
Í yfirlýsingu sem Róbert Wessman, Árni Harðarson og Magnús Jaroslav Magnússon sendur frá sér vegna dóms Hæstaréttar segir: „Málaferli Matthíasar Johannessen eiga sér langa sögu en hann var við upphaf starfsemi Alvogen starfsmaður sem boðið var að kaupa 2% í fjárfestingafélagi sem þá var nýbúið fjárfesta í Alvogen. Hann hætti þar störfum í mars 2010 og hóf skömmu síðar störf hjá Björgólfi Thor Björgólfssyni. Í nær átta ár hefur Matthías sóst eftir ævintýralegri ávöxtun sem hluthafi í félaginu Aztiq Pharma Partners sem hann keypti 2% hlut í fyrir 10.000 krónur árið 2009. Matthías sjálfur hafði miklar væntingar um ávöxtun en með dómi Hæstaréttar voru honum dæmdar um 7% af upphaflegri 9 milljarða bótakröfu hans.
Niðurstaða Hæstaréttar felur í sér að ávöxtun Matthíasar nemur um 6.400.890% sem er yfir 6 milljón prósenta ávöxtun á einu ári. Undirritaðir eru nú dæmdir til að greiða Matthíasi um 640 milljónir króna. Undirritaðir telja að því miður horfi Hæstaréttur fram hjá nokkrum lykilatriðum í málinu og eru það því talsverð vonbrigði fyrir undirritaða að vera dæmdir bótaskyldir gagnvart Matthíasi jafnvel þó bæturnar séu brot af því sem hann fór fram á. Menn geta velt fyrir sér hvernig æðsti dómstóll landsins getur komist að þeirri niðurstöðu að margra milljón prósenta ársávöxtum á fjárfestingu geti verið eðlileg niðurstaða.“
Í dómi Hæstaréttar er talað um saknæma háttsemi þeirra Róberts, Árna og Magnúsar, en þar kemur fram að þeir hafi með „ólögmætri og saknæmri háttsemi staðið því í vegi að aðaláfrýjandi fengi notið réttinda sinna sem hluthafi“ í Aztiq Pharma Partners.
Málið snýst kaup mannanna fjögurra á félagi sem síðar fékk nafnið Aztiq Pharma Partners ehf. Átti félagið, í gegnum dótturfélög sín 30% hlut í lyfjafyrirtækinu Alvogen. Átti Róbert 94% í félaginu en hinir 2% hver. Síðar eignaðist Árni hlut Róberts, en Matthías taldi sig eiga forkaupsrétt á þriðjungi hlutabréfa Róberts.