Gunnar Bragi: „Ískalt“ hagsmunamat Sjálfstæðisflokksins

Þingflokksformaður Miðflokksins er ósáttur við hvernig stjórnvöld hafa haldið á málum er varða hlut ríkisins í Arion banka.

sigmundur og gunnar bragi 9.10.2017
Auglýsing

„Dönsk stjórn­völd, norsk stjórn­völd, bresk stjórn­völd, banda­rísk stjórn­völd tóku hags­muni þjóð­ar­innar umfram hags­muni vog­un­ar­sjóð­anna og leystu til sín þá banka sem þeir þurftu að leysa til sín og ­fóru í þá veg­ferð að end­ur­skipu­leggja sitt kerfi, en hvað gerum við núna? Ég hef grun um að þetta sé þannig kæru þing­menn, að þetta hafi verið ískalt hags­muna­mat Sjálf­stæð­is­flokks­ins,“ sagði Gunnar Bragi Sveins­son, þing­flokk­for­maður Mið­flokks­ins og fyr­ir­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, á Alþingi í dag, þar sem hann ræddi stefnu stjórn­valda er varðar söl­una á hlut rík­is­ins í Arion banka.

Eins og greint hefur verið frá þá hefur Banka­sýsla rík­is­ins lagt það til, að ríkið selji 13 pró­sent hlut sinn í Arion banka til Kaup­skila. Kaup­réttur sem Kaup­skil hafa á hlut rík­is­ins mið­ast við ákvæði í hlut­hafa­sam­komu­lagi frá árinu 2009. 

Í til­lögu banka­sýsl­unnar segir að í hlut­hafa­sam­komu­lagi frá 2009 hafi komið fram hvernig kaup­rétt­ar­verðið skyldi reiknað út og voru for­sendur að rík­is­sjóður skyldi ávaxta upp­haf­legt fram­lag sitt, sem þá var 10 millj­arð­ar. 

Auglýsing

Nið­ur­staða banka­sýsl­unnar sé að kaup­rétt­ar­verðið sem Kaup­skil hafi boð­ið, 23,4 millj­arð­ar, sé því rétt útreiknað miðað við hlut­hafa­sam­komu­lag­ið, og að kaup­rétt­ur­inn sé for­taks­laus og óum­deild­ur. 

Með söl­unni fer íslenska ríkið út úr hlut­hafa­hópi Arion banka, en und­ir­bún­ingur fyrir skrán­ingu bank­ans á markað er nú í fullum gangi. Lagt er upp með að hann verði skráður á markað síðar á árinu, og eign­ar­hald bank­ans þannig end­ur­skipu­lagt.

Ríkið er eig­andi Íslands­banka 100 pró­sent og Lands­bank­ans rúm­lega 98 pró­sent, svo eignir þess í banka­kerf­inu eru ennþá veru­lega miklar, í hlut­falli við rekstur rík­is­sjóðs. Sam­an­lagt nemur eigið fé þess­ara tveggja banka rúm­lega 427 millj­örðum króna.

Gunnar Bragi sagði í ræðu sinni, að stjórn­völd væru að leggj­ast flöt fyrir vog­un­ar­sjóð­un­um, en Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hefur sagt að íslensk stjórn­völd séu nú búin að færa þræði í hendur vog­un­ar­sjóða og „missa stjórn­ina“ á atburða­rásinni við end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent