Árni Harðarson, sem Björn Ingi Hrafnsson hefur kært fyrir fjársvik, segir Björn Inga ítrekað hafa haft í hótunum við sig persónulega og aðra eigendur Dalsins, sem ætluðu að kaupa fjölmiðlaveldi hans í fyrra.
Markmið þeirra hótana hafi verið að komast hjá „skoðun opinberra aðila á bókhaldi og fjárreiðum Pressunar og tengdra miðla.“ Þá segir Árni að Björn Ingi hafi reynt að greiða fá að greiða fyrir hlutafé í Pressunni með steikum frá veitingahúsinu Argentínu, að Björn Ingi hafi fengið persónulega greiddar 80 miljónir króna þegar hann seldi allar eignir DV og Pressunnar og að í smáskilaboðum sem hann hafi sent Árna á kjördegi í fyrra hafi Björn Ingi sagt: „Er núna að klastra saman ríkisstjórn og langar að koma á friði okkar í millum“. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Árni hefur sent frá sér vegna fréttar um kæru Björns Inga á hendur honum, Halldóri Kristmannssyni og lögmanni þeirra, Bjarka Diego, til héraðssaksóknara fyrir fjársvik, skilasvik og skjalabrot.
Yfirlýsing Árna er í heild sinni hér að neðan:
„Björn Ingi Hrafnsson hefur ítrekað haft í hótunum við mig persónulega og aðra eigendur Dalsins með það að markmiði að komast hjá skoðun opinberra aðila á bókhaldi og fjárreiðum Pressunar og tengdra miðla. Félög sem Björn Ingi var í forsvari fyrir skilja eftir sig hundruði milljóna í skuldir, m.a. til opinberra aðila og lífeyrissjóða. Málefni umræddra félaga eru nú til skoðunar hjá skiptastjóra Pressunar, sem meðal annars hefur til skoðunar hvort kröfuhöfum hafi verið mismunað og hvort Björn Ingi hafi dregið sér fé úr þessum félögum eins og fyrrverandi stjórn Pressunar hefur rökstuttan grun um. .
Björn Ingi hefur hótað mér nokkrum sinnum þegar a) Dalurinn vildi ekki láta hann persónulega fá meiri pening b) þegar hann sá að Dalurinn vildi ekki setja meiri pening í að bjarga illa reknum einkabanka hans í formi Pressunnar og c) þegar Dalurinn vildi ekki láta hann fá hlutafé sitt í Pressunni eftir að hann seldi allar eigur þess (fyrir það átti m.a. að greiða með steikum á Argentínu fyrir 6 milljónir króna). Ekki í fyrsta sinn sem Björn Ingi bíðst til að greiða skuldir sínar með inneignum en hann greiddi einmitt fyrir einbýlishús sitt í Grafarholti með auglýsingum í miðlum Pressunar eins og áður hefur komið fram í fjölmiðlum.
Björn Ingi biðst formlega afsökunar
Og nú er Björn Ingi búinn að kæra. 29. Október 2017 sendi Björn Ingi mér svofellt textaskilaboð í framhaldi af því að ég lét í ljós vanþóknun mína á hótun hans um kæru vegna nákvæmlega þeirra mála er hér fjallar um: „Ég skal biðja þig afsökunar á því hér og nú og formlega. Það var ekki verðskuldað og mér þykir fyrir því“. (Í næstu skilaboðum stóð reyndar „Er núna að klastra saman ríkisstjórn og langar að koma á friði okkar í millum“)
Björn Ingi heldur því væntanlega fram núna að einhver hafi þvingað hendur hans á lyklaborðinu þarna eða hvað?
Hið rétta í málinu er að Björn Ingi borgaði ekki kaupverðið fyrir Birting frekar en aðrar skuldir og eigendur Birtings vildu rifta, sem er oft það sem gerist þegar kaupandi borgar ekki og það vita þeir sem hafa átt í viðskiptum við Björn Inga að hann borgar ekki sérstaklega vel eða mikið til baka. Björn Ingi samþykkti þá riftun skriflega, þó hann sjái kannski eftir því í dag því þá gat hann ekki selt Birting um leið og hann seldi allar aðrar eignir félags sem hann átti minnihluta í.
Björn Ingi fékk persónulega greiddar 80 milljónir þegar hann seldi allar eignir DV og Pressunnar eins og meðfylgjandi kaupsamningar bera skýrlega með sér. Í mínum huga er þetta borðleggjandi fjárdráttur. Á sama tíma er hann ósáttur við að bera persónulega ábyrgð á 50 milljón króna láni til hans einkahlutafélags. Af hverju er hann það. Ætlaði hann aldrei að greiða þetta lán til baka? Dæmi nú hver fyrir sig en ég hef ekki áhyggjur af þeirri fjölmiðlafléttu sem Björn Ingi er að reyna setja upp í þeim tilgangi að hefna sín á mönnum sem hann telur sig eiga sökótt við. Ég legg að sjálfsögðu öll gögn sem héraðssaksóknari hefur áhuga á að sjá fram til saksóknara. Þau gögn eru Birni Inga ekki til framdráttar.“