Áætlaður sparnaður ríkisins af minni snjómokstri, viðhaldi vega og vega framkvæmdum í Hvalfirði eftir opnun Hvalfjarðarganga, sem og sparnaður af því að hætta siglingum Akraborgar, eru rúmlega 4,5 milljarðar samkvæmt svari Sigurðar Inga Jóhannssonar samgöngu og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn þessa efnis. Halla Signý Kristjánsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi spurði ráðherra um sparnaðinn.
Í svari ráðherra kemur fram að snjómokstursrelgum fyrir Hvalfjarðarveg hafi lítið breyst með tilkomu ganganna. Enn séu ákveðnir kaflar mokaðir og hálkuvarðir alla daga vikunnar. Þjónustustigið sé hins vegar heldur lægra en það væri ef öll umferð færi um Hvalfjörðinn.
Farið er yfir hvernig umferð um veginn hefði þróast ef göngin hefðu ekki komið til. Líklegast er að ef svo hefði verið hefði vegurinn verið þjónustaður samkvæmt þjónustuflokki 2 síðustu 20 árin, sem hefði þýtt útgjöld sem næmi um 80 milljónum króna á núvirði. Hefði vegurinn verið í þjónustuflokki 1 hefði verið um að ræða 480 milljóna sparnað að ræða á þessum 20 árum.
Fram kemur að erfitt sé að meta með öruggum hætti hversu miklu fé hefði þurft að verja til viðhalds vegarins ef Hvalfjarðarganga hefði ekki notið við. Áætla megi að umferð um Hvalfjörð hefði vart vaxið í samræmi við þau gögn sem miðað er við, þar sem umferð um Hvalfjarðarbotn sem og göngin eru tekin saman, en varfærið mat gæti verið 3.000 til 4.500 bílar á dag. Hefði það orðið raunin sé nokkuð víst að nauðsynlegt hefði verið að styrkja og breikka að minnsta kosti helming vegarins og eins hefði þurft að endurnýja slitlag minnst þrisvar sinnum oftar en raunin varð síðastliðin tíu ár. Þetta gæti hafa kostað á verðlagi dagsins í dag á milli 1.200 og 2.000 milljónir króna.
Þá var árlegur kostnaður Vegagerðarinnar vegna Akraborgar síðustu árin sem hún var í rekstri um 41 milljón á verðlagi ársins 1997, þar af 23 milljónir vegna stofnkostnaðar, það er afborganir af lánum og 18 milljónir í rekstrarstyrk. Framreiknað með byggingarvísitölu jafngildir það 70 milljóna króna stofnstyrk og 55 milljóna króna rekstrarstyrk eða alls 125 milljónir á verðlagi 2018. Á 20 árum gera það 2,5 milljarða.
Alls hefði sparnaðurinn því minnst verið 3.780 milljónir á þessum 20 árum en mest 4.980 milljónir.