Akstursupplýsingar frá 1. janúar birtar

Upplýsingar um þingfararkostnað alþingismanna verður birtur og verða þær miðaðar við 1. janúar 2018 og uppfærðar mánaðarlega. Ekki hefur verið ákveðið að birta greiðslur til þingmanna fyrir þann tíma.

Akstur_3.jpg
Auglýsing

Upp­lýs­ingar um þing­far­ar­kostnað alþing­is­manna verður birtur á sér­stakri vef­síðu og verða þær mið­aðar við 1. jan­úar 2018 og upp­færðar mán­að­ar­lega fram­veg­is. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Stein­grími J. Sig­fús­syni for­seta Alþing­is. Ekki hefur verið ákveðið að birta greiðslur til þing­manna fyrir þann tíma.

Í til­kynn­ing­unni segir að á fundi for­sætis­nefndar Alþingis í morgun hafi verið sam­þykktar sam­hljóða breyt­ingar á reglum um þing­far­ar­kostn­að. Í þeim fel­ast þrjár efn­is­breyt­ing­ar:

Í fyrsta lagi verða ákvæði um bíla­leigu­bíla gerð skýr­ari, einkum fyrir þá þing­menn sem falla undir svo­kall­aðan heim­an­akst­ur, þ.e. akstur til og frá heim­ili dag­lega um þing­tím­ann. Það eru þing­menn sem búa í nágrenni Reykja­víkur (á Suð­ur­nesjum, Vest­ur­landi, Árnes­sýslu o.s.frv.). Akstur á eigin bif­reið­um, sem kemur til end­ur­greiðslu, verður bund­inn hámarki við 15.000 km. Í öðru lagi eru sett skýr­ari ákvæði um stað­fest­ing­ar­gögn sem eru grund­völlur end­ur­greiðslu. Loks eru ný ákvæði um með hvaða skil­málum þing­menn geta notað bíla­leigu­bíl. Breyt­ingar þessar á regl­unum um þing­far­ar­kostnað verða birtar á vef Alþingis á morg­un. Þá sam­þykkti for­sætis­nefnd í gær, þar sem einnig sátu for­menn þing­flokka, vinnu­reglur um birt­ingu upp­lýs­inga um allan þing­far­ar­kostnað eins og áður seg­ir. Upp­lýs­ing­arnar munu birt­ast á sér­stakri síðu og snýr það að fram­tíð­ar­-­fyr­ir­komu­lagi þess­ara mála. Upp­lýs­ingar verða mið­aðar við 1. jan. 2018 og verða upp­færðar mán­að­ar­lega fram­veg­is.

Auglýsing

Í til­kynn­ing­unni segir að með þessu sé fyrsta áfanga í breyttri fram­kvæmd lok­ið. Ýmis önnur atriði koma svo til athug­unar síð­ar, þar á meðal frek­ari upp­lýs­inga­gjöf um það sem liðið er. Unnið er að tækni­legum und­ir­bún­ingi síð­unn­ar, en von­ast er til að birt­ing upp­lýs­inga, a.m.k. hluta þeirra, geti haf­ist næstu daga og komi til fullrar fram­kvæmdar á næstu tveim vikum eða svo, eftir því hvernig tækni­legri vinnu vindur fram.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent