Skipar stýrihóp um úrbætur í kynferðisofbeldismálum

Forsætisráðherra hefur skipað stýrihóp sem á að beita sér fyrir framsæknum og samhæfðum aðgerðum stjórnvalda gegn kynferðislegu ofbeldi og kynferðislegri og kynbundinni áreitni.

Metoo - ofbeldi
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra, hefur skipað stýri­hóp um heild­stæðar úrbætur að því er varðar kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Meg­in­hlut­verk hóps­ins er að beita sér fyrir fram­sæknum og sam­hæfðum aðgerðum stjórn­valda gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi og kyn­ferð­is­legri og kyn­bund­inni áreitni og að Ísland sé í fremstu röð í bar­átt­unni gegn hvers kyns kyn­bundnu ofbeldi, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

For­maður hóps­ins er Halla Gunn­ars­dótt­ir, full­trúi for­sæt­is­ráðu­neyt­is, en auk hennar eiga sæti í stýri­hópnum full­trúar dóms­mála­ráðu­neyt­is, vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytis og utan­rík­is­ráðu­neyt­is.

Við­fangs­efni stýri­hóps­ins verður meðal ann­ars að gera til­lögur um útfærslu á aðgerðum sem kveðið er á um í nýrri aðgerða­á­ætlun um úrbætur í með­ferð kyn­ferð­is­brota innan rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins og taka afstöðu til frek­ari úrbóta.Einnig skal stýri­hóp­ur­inn fylgj­ast með fram­kvæmd áætl­un­ar­innar og beita sér fyrir full­nægj­andi fjár­mögnun henn­ar.

Auglýsing

Þá mun stýri­hóp­ur­inn beita sér fyrir full­gild­ingu samn­ings Evr­ópu­ráðs­ins um for­varnir og bar­áttu gegn ofbeldi gegn konum og heim­il­is­of­beldi (Ist­an­búl-­samn­ings­ins) og gera til­lögu um sam­ræmd við­brögð stjórn­valda við #metoo-­bylt­ing­unni, bæði er lýtur að sam­fé­lag­inu í heild og að Stjórn­ar­ráð­inu og stofn­unum þess sem vinnu­veit­anda.

Loks er hópnum falið að móta stefnu um aðgerðir gegn staf­rænu kyn­ferð­is­of­beldi.

Stýri­hóp­ur­inn mun vera for­sæt­is­ráð­herra og ráð­herra­nefnd um jafn­rétt­is­mál til ráð­gjafar í stefnu­mótun er lýtur að kyn­ferð­is­legu ofbeldi, kyn­bundnu ofbeldi og kyn­ferð­is­legri áreitni í íslensku sam­fé­lagi og jafn­framt er gert ráð fyrir að allt að 5 millj­ónum króna verði varið í sér­stök for­gangs­verk­efni sem stýri­hóp­ur­inn mun vinna að á þessu ári.

Gert er ráð fyrir að hóp­ur­inn skili verk­á­ætlun til þriggja ára, ásamt yfir­liti yfir stöðu verk­efn­anna og eftir atvikum til­lögum um úrbætur og verk­efni, til ráð­herra­nefndar um jafn­rétt­is­mál, eigi síðar en 1. sept­em­ber.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent