Alls eru 46.572 íslenskir ríkisborgarar með skráða búsetu í útlöndum, samkvæmt upplýsingum sem Þjóðskrá hefur birt.
Flestir eru búsettir í Danmörku eða alls 10.628 einstaklingar. Næstflestir eða 9.556 einstaklingar búa í Noregi, og í Svíþjóð rúmlega 8.500.
Samtals búa því yfir 28 þúsund Íslendingar á Norðurlöndunum.
„Flestir íslenskir ríkisborgarar sem búsettir eru í útlöndum búa á Norðurlöndum eða 62,8%. Utan Norðurlanda búa 37,2%. Þess má geta að í 20 ríkjum er aðeins einn íslenskur ríkisborgari með skráða búsetu samkvæmt gögnum Þjóðskrár Íslands. Þetta eru meðal annars Sambía, Albanía, Gínea, Gana, Belís, Mongólía og Papúa Nýja-Gínea,“ segir í umfjöllun Þjóðskrár.
Íslenska ríkisborgara er að finna í alls 118 ríkjum af 193 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna.