Framkvæmdir við nýjan Landsbanka hefjast í byrjun næsta árs

Landsbankinn hefur ákveðið að ganga til samninga við Arkþing ehf. og C.F. Møller um hönnun og þróun á nýbyggingu bankans við Austurhöfn í Reykjavík, sem staðsett verður milli Hörpu og Hafnartorgs.

Landsbankinn Austurhöfn
Auglýsing

Lands­bank­inn hefur ákveðið að ganga til samn­inga við Ark­þing ehf. og C.F. Møller um hönnun og þróun á nýbygg­ingu bank­ans við Aust­ur­höfn í Reykja­vík, sem stað­sett verður milli Hörpu og Hafn­ar­torgs. Áætluð stærð húss­ins er um 16.500 fer­metr­ar, auk bíla­kjall­ara sem nýt­ast mun öllu svæð­inu við Aust­ur­höfn. Bank­inn hyggst nýta um 10 þús­und fer­metra í nýja hús­inu undir eigin starf­semi en restin fer undir aðra verslun og þjón­ustu.

Sjö arki­tektateymi voru í októ­ber síð­ast­liðnum valin til að skila inn frum­til­lögum að hönnun húss­ins og í jan­úar bár­ust bank­anum til­lögur frá sex teym­um, að við­hafðri nafn­leynd. Þriggja manna ráð­gjafa­ráð var banka­stjóra og banka­ráði til full­tingis við ákvörð­un­ina og mælti ráð­gjafa­ráðið með þeirri til­lögu sem varð fyrir val­inu. Þegar samn­ingar við til­lögu­höf­unda liggja fyrir mun vinna við fulln­að­ar­hönnun húss­ins hefj­ast. Frum­til­lagan getur tekið breyt­ingum á hönn­un­ar­stigi, þótt heild­ar­yf­ir­bragð húss­ins verði óbreytt. Stefnt er að því að hefja fram­kvæmdir í byrjun næsta árs. Bygg­ing húss­ins verður boðin út.

Í til­kynn­ingu frá bank­anum er haft eftir Lilju Björk Ein­ars­dóttur banka­stjóra Lands­bank­ans að með þessu verði starf­semi bank­ans flutt í mun minna, hag­kvæmara og hent­ugra hús­næði. „Við erum að flytja starf­semi bank­ans í mun minna, hag­kvæmara og hent­ugra hús­næði. Einn helsti kostur til­lög­unnar er að vinnu­rýmin eru ákjós­an­leg og með góðum inn­byrðis tengslum sem styðja við nútíma vinnu­um­hverfi þar sem áhersla verður lögð á verk­efna­mið­aða vinnu­að­stöðu. Húsið er vel hannað skrif­stofu- og versl­un­ar­hús­næði og þeir hlutar húss­ins sem bank­inn hyggst leigja eða selja undir aðra starf­semi eru vel heppn­að­ir. Það skiptir miklu máli að skipu­lag húss­ins er sveigj­an­legt og því verður auð­velt að móta húsið að breyt­ingum á starf­semi bank­ans. Þetta er fjár­fest­ing til fram­tíð­ar.“

Auglýsing

Lands­bank­inn er nú með starf­semi í 13 húsum í mið­borg Reykja­vík­ur, að langstærstum hluta í leigu­hús­næði, í alls 21 þús­und fer­metr­um. Bank­inn segir núver­andi hús­næði bæði óhent­ugt og óhag­kvæmt fyrir rekstur bank­ans. Banka­ráð Lands­bank­ans ákvað vorið 2017 að byggja hús­næði fyrir starf­semi bank­ans að Aust­ur­bakka 2 við Aust­ur­höfn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent