Borgarlínan „lykilþáttur“ í samkeppnishæfni höfuðborgarsvæðisins

Höfuðborgarsvæðið, sem meðalstór norræn borg, er í samkeppni við aðrar slíkar á Norðurlöndum um íbúa, bæði íslenska og erlenda. Hágæða almenningssamgöngukerfi sem gefur möguleika á þéttri borgarbyggð er þar „lykilþáttur“ segir Davíð Þorláksson.

Davíð Þorláksson er framkvæmdastjóri Betri samgangna ohf.
Davíð Þorláksson er framkvæmdastjóri Betri samgangna ohf.
Auglýsing

Davíð Þor­láks­son fram­kvæmda­stjóri opin­bera hluta­fé­lags­ins Betri sam­gangna, sem heldur utan um fram­kvæmdir og fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, segir í sam­tali við Kjarn­ann að upp­bygg­ing hágæða almenn­ings­sam­göngu­kerfis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé „lyk­il­þátt­ur“ í því að auka sam­keppn­is­hæfni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins við aðrar sam­bæri­legar borgir á Norð­ur­lönd­un­um.

„Borg­ar­línan er ekki bara sam­göngu­verk­efni, þetta er umbreyt­ing­ar­verk­efni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, borg­ar­um­breyt­ing­ar­verk­efn­i,“ segir Dav­íð, sem ræddi við blaða­mann um ýmis verk­efni sem standa fyrir dyrum hjá Betri sam­göngum í aðdrag­anda jóla.

„Ég held að við þurfum að hugsa meira þannig að það er bara ein borg á Íslandi og það er höf­uð­borg­ar­svæð­ið, ekki bara Reykja­vík. Við þurfum að horfa á þetta allt sam­an, líta á þetta allt sem eina borg og gera okkur grein fyrir því að við erum í heil­mik­illi sam­keppni um fólk og sér í lagi unga fólkið okk­ar. Nýir íbú­ar, börn sem vaxa úr grasi eða inn­flytj­endur og Íslend­ingar sem koma aftur heim, þetta fólk er hag­vöxt­ur. Þetta er það sem drífur áfram hag­vöxt, það er nýtt fólk. Það er lyk­il­at­riði, og sér­stak­lega núna þegar barn­eignum fer fækk­andi, er mik­il­vægt að við löðum til okkar fólk, bæði inn­flytj­endur og Íslend­inga sem hafa flutt út, því það er það sem drífur áfram hag­kerfið okk­ar,“ segir Dav­íð.

Auglýsing

„Borg­ar­línan er lyk­il­þáttur í því, að við séum með hágæða­al­menn­ings­sam­göngu­kerfi, sam­bæri­leg við þau sem Íslend­ingar eru vanir að nota sem hafa búið í borgum á Norð­ur­lönd­un­um. Þar þurfum við ekk­ert að bera okkur saman við Kaup­manna­höfn, Stokk­hólm og Ósló, ein­hverjar stór­borgir, við getum borið okkur saman við með­al­stórar nor­rænar borgir og höf­uð­borg­ar­svæðið er bara ein af þeim,“ bætir hann við.

Davíð segir höf­uð­borg­ar­svæðið sé með­al­stór nor­ræn borg og í þeim nær öllum séu hágæða almenn­ings­sam­göngu­kerfi. Slíkt kerfi sé til þess fallið að það sé hægt að þétta byggð nálægt stöðv­un­um, með­fram lín­unni, „sem dregur úr ferða­tíma og býr til skemmti­legra borg­ar­um­hverfi og það er það umhverfi sem meg­in­þorri ungs fólks alla­vega vill lifa í, í þéttu umhverfi þar sem það getur notað fjöl­breytta ferða­máta“.

Bíll­inn verði áfram vin­sælastur

Davíð segir að þrátt fyrir að horft sé til þess að ferða­venjur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu breyt­ist með til­komu Borg­ar­línu muni flestir áfram nota einka­bíl­inn.

„Bíll­inn verður áfram vin­sæl­asti ferða­mát­inn þrátt fyrir að öll okkar plön gangi eftir en það verður alla­vega til staðar þessi mögu­leiki fyrir mjög margt fólk að nota Borg­ar­lín­una og Strætó líka, sem verður enn betri þegar hann verður kom­inn með Borg­ar­lín­una sem svona hryggjar­stykkið í sér,“ segir Davíð og nefnir að auki fjár­fest­ingu í betri hjóla- og göngu­stígum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

„Við erum auð­vitað að setja marga millj­arða í þau verk­efni líka svo að sá ferða­máti nýt­ist enn bet­ur. Við erum að sjá gríð­ar­legan vöxt í notkun á þeim ferða­máta og það ger­ist ekki af sjálfu sér, það ger­ist með því að það sé fjár­fest í þessu og menn búi til betri inn­viði því fólk er í eðli sínu skyn­samt, það gerir það sem það telur vera hag­kvæm­ast,“ segir Dav­íð.

„Ef það er kom­inn ótrú­lega góður ferða­máti sem hentar þér betur en það sem þú not­aðir áður þá mun margt fólk breyta ferða­venjum sín­um. Það er reynslan alls stað­ar, við erum ekk­ert að reyna að finna upp hjól­ið. Allar borgir í Evr­ópu sem mér er kunn­ugt um og meira að segja mjög margar borgir í Norð­ur­-Am­er­íku, gamlar bíla­borgir, eru að fara þessa leið, að leggja höf­uð­á­herslu á fjöl­breytta ferða­máta, almenn­ings­sam­göng­ur, göngu- og hjóla­stíga frekar en gam­al­dags mann­virki fyrir bíla, þó að við séum vissu­lega að fjár­festa mjög mikið í þeim hér,“ segir Davíð einnig.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent