Umhverfisráðherra vanhæfur til að fara með mál Landverndar

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra verður settur ráðherra til að fara með tiltekin mál á ábyrgðarsviði Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra er varða Landvernd á þeim grundvelli að hann sé vanhæfur.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson er umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson er umhverfis- og auðlindaráðherra.
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hyggst leggja það til við for­seta Íslands að Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra verði settur ráð­herra til að fara með til­tekin mál á ábyrgð­ar­sviði Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra er varða Land­vernd á þeim grund­velli að hann sé van­hæfur til að fara með mál­in. Guð­mundur hefur ákveðið að víkja á grund­velli stjórn­sýslu­laga, sem kveða á um að ef fyrir hendi eru aðstæður sem séu til þess fallnar að draga óhlut­drægni hans í efa með réttu beri honum að víkja, þar sem hann hafi á þeim tíma sem málin bár­ust ráðu­neyt­inu gegnt stöðu fram­kvæmda­stjóra félags­ins.

Um er að ræða fjögur mál:

Auglýsing
  1. Erindi Land­vernd­ar, dags. 23. maí 2017, þar sem skortur á eft­ir­liti Umhverf­is­stofn­unar með fram­kvæmdum Lands­nets hf., við lagn­ingu háspennu­línu frá Kröflu, Þeista­reykjum að Bakka, er kærð­ur.

  2. Erindi Land­vernd­ar, dags. 12. sept­em­ber 2017, þar sem farið er fram á að umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neytið fjalli um lög­mæti álits Skipu­lags­stofn­unar um mat á umhverf­is­á­hrifum Hval­ár­virkj­un­ar.

  3. Umsóknir Land­verndar til umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neytis um verk­efna­styrki, dags. 18. – 22. nóv­em­ber 2017, ásamt umsóknum ann­arra aðila um styrk­ina.

  4. Erindi nokk­urra eig­enda Reykja­hlíðar í Mývatns­sveit, dags. 8. des­em­ber 2017, um fyr­ir­hug­aðar frið­lýs­ingar á jörð­inni.

Ekki er um að ræða mál sem snýr að fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manni Guð­mund­ar, Sifjar Kon­ráðs­dótt­ur, sem hætti á dög­un­um. Þar hefur Umhverf­is­stofnun sent ráðu­neyt­inu friðun jarð­ar­innar Hóla í Öxna­dal. Sif er eig­andi jarð­ar­innar ásamt maka sín­um. Þau fóru fram á að jörðin yrði frið­lýst, en þau hafa stundað skóg­rækt og fleira á jörð­inni. Vísir greindi fá mál­inu um dag­inn en ástæða þess að þau fóru fram á firð­lýs­ingu er meðal ann­ars til að tor­velda lagn­ingu Blöndulínu 3 sem á að fara yfir jörð þeirra. Þau hafa kært og gert athuga­semdir við lagn­ingu lín­unnar allt frá árinu 2013.

Í sam­tali við Vísi sagð­ist Sif ekki telja að Guð­mundur væri van­hæfur til að taka ákvörðun um frið­lýs­ing­una þó hún væri þá aðstoð­ar­maður hans og þannig und­ir­maður hans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent