Formaður og varaformaður knattspyrnudeildar Tindastóls hafa hætt störfum, og segjast þeir í yfirlýsingu harmað að hafa gert mistök og sem líklega verði „aldrei hægt að bæta fyrir“.
Er yfirlýsingin, sem birtist á vefnum Feyki, sett fram í kjölfar frétta Stundarinnar sem varða mál fyrrum starfsmanns kjnattspyrnudeildarinnar.
Orðrétt segja þeir Bergmann Guðmundsson og Guðjón Örn Jóhannsson í yfirlýsingunni: „Í kjölfar fréttar fjölmiðilsins, Stundarinnar er varða mál fyrrum starfsmanns deildarinnar og mjög alvarlegra ásakana í hans garð er ljóst að deildinni hafa orðið á mikil mistök. Mistök sem sennilega verður aldrei hægt að bæta fyrir. Við viljum byrja á að taka heils hugar undir orð Aðalstjórnar Ungmennafélags Tindastóls sem sagði m.a. í yfirlýsingu sinni frá því í 25. febrúar 2018, orðrétt: „...Kemur þessi frétt í kjölfar #MeToo umræðunnar þar sem konur í fjölmörgum greinum stigu fram og sögðu frá sinni reynslu af kynferðislegri áreitni, kynferðislegu ofbeldi, þöggun og lítilsvirðingu. Konur í íþróttum voru þar á meðal og áttu sumar af þeim sögum sem nístu hjartað hvað mest. Þessar frásagnir kvennanna í Stundinni gerðu það einnig.
Það er mikilvægt að íþróttahreyfingin í heild sinni hlusti á þessar raddir þolenda og aðstandenda þeirra, læri af þeim og bregðist við af fullum þunga. Ábyrgð stjórnenda, formanna, forsvarsmanna og þjálfara er þar mikil. Stjórnendur Ungmennafélagsins Tindastóls vilja því sérstaklega taka fram að félagið stendur með þolendum. Við tökum ábyrgð okkar alvarlega og við tökum málstað þolenda alvarlega. Kynferðislegt ofbeldi, kynferðisleg áreitni, einelti eða annað ofbeldi verður ekki undir neinum kringumstæðum liðið í starfi Ungmennafélagsins Tindastóls...“ Við þetta viljum við bæta og lýsa því hér með formlega yfir að deildinni urðu á stór mistök í maí á síðasta ári með stuðningsyfirlýsingu sinni við Ragnar Þór Gunnarsson, þáverandi leikmann liðsins, sem dæmdur var fyrir kynferðisbrot. Sú yfirlýsing átti ekki rétt á sér og þykir okkur leitt að hafa ekki staðið með okkar fólki, hafa valdið því vonbrigðum og þolendum óþarfa sársauka. Hvað varðar mál fyrrum starfsmanns okkar sem fjallað er um í Stundinni síðastliðna helgi, en þar koma fram 12 stúlkur og segja sína sögu um samskipti við manninn, er ljóst að deildinni urðu á óafsakanleg mistök við ráðningu hans í barna- og unglingastarf félagsins,“ segir í yfirlýsingunni.
Þeir segjast síðan vona að með því að þeir stigi til hliðar, þá geti skapast friður í félaginu. „Málum eins og hafa komið upp í umræðuna í kjölfar #MeToo byltingarinnar sem og öðrum málum sem ekki eiga heima í heimi íþróttanna, frekar en annarsstaðar. Eins og fram kemur í yfirlýsingum Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS) og Aðalstjórnar Ungmennafélags Tindastóls hefur vinna staðið yfir í vetur við að skrifa siðareglur fyrir félagið og er það vel. Til að taka ábyrgð á mistökum okkar segjum við okkur frá störfum okkar fyrir félagið. Það er okkar von að með þessari yfirlýsingu skapist friður um störf knattspyrnudeildar Tindastóls og félagsins alls,“ segir í yfirlýsingunni.