Stjórnmálaheimspeki Hannesar ekki kennd næsta vetur

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við Stjórnmálafræðideild, mun ekki kenna áfangann Stjórnmálaheimspeki á komandi haustmisseri, þar sem hann verður í rannsóknarleyfi.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Auglýsing

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor við Stjórn­mála­fræði­deild, mun ekki kenna áfang­ann Stjórn­mála­heim­speki á kom­andi haust­miss­eri, þar sem hann verður í rann­sókn­ar­leyfi. Þetta kemur fram í frétt á síð­unni Stu­dent.is.

Í des­em­ber sendu 65 nem­endur kröfur til deild­ar­innar þess efnis að Hannes yrði form­lega ávítt­ur, bók hans Saga Stjórn­mála­kenn­inga yrði aflögð sem kennslu­gagn og að nem­endum yrði ekki lengur skylt að sitja áfang­ann. Á fundi Stjórn­mála­fræði­deildar dag­inn eft­ir, þegar stað­festa átti kennslu­skrá háskóla­árs­ins 2018-2019, las Baldur Þór­halls­son, for­seti deild­ar­inn­ar, upp erind­ið.

Auglýsing

Í fund­ar­gerð­inni, sem Stu­dent.is hefur undir hönd­um, kemur einnig fram að full­trúi nem­enda hafi komið á fram­færi kvört­unum nem­enda en þær snúi að kennslu­bók nám­skeiðs­ins og kennslu­háttum Hann­esar sem að þeirra mati inni­haldi kyn­þátta­for­dóma, kven­fyr­ir­litn­ingu, fitu­for­dóma og virð­ing­ar­leysi við fólk með fatl­an­ir. Lagði nem­enda­full­trú­inn til að annar kenn­ari væri feng­inn til að kenna nám­skeiðið eða að nem­endur fengju að velja sam­bæri­legan áfanga í Heim­speki­deild.

Í kjöl­farið var kennslu­skrá BA-­náms­ins sam­þykkt, fyrir utan nám­skeiðið Stjórn­mála­heim­speki, þar sem mál­efni þess væru til skoð­un­ar.

Málið var síðan sett í hendur for­seta félags­vís­inda­sviðs, Daða Más Krist­ó­fers­son­ar, þar sem það fór í hefð­bundið ferli. Hann segir svið­inu skylt að rann­saka jafn alvar­legar ásak­anir og þær sem nem­endur komu fram með. Það hafi verið gert og nið­ur­staðan liggi fyrir en verði ekki gerð opin­ber. Daði Már vildi ekki svara fleiri spurn­ingum þar sem honum væri óheim­ilt að tjá sig um mál­efni ein­staka starfs­manna.

Til stóð að Hannes færi í rann­sókn­ar­leyfi á vor­önn 2019 en nú liggur fyrir að leyfið verður tekið á haustönn á þessu ári. Hannes segir breyt­ing­una ekk­ert hafa með kvart­anir nem­anda að gera. Þetta kemur fram í skrif­legu svari hans til Stu­dent.is en Hannes birtir sam­skipti sín við blaða­mann á blogg­síðu sinni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent