Sjálfsagt að þingmenn segi af sér ef þeir gefa út tilhæfulausa reikninga

Það að komast í gegnum kosningar á ekki að veita þingmönnum syndaaflausn, segir Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata. Hann var á meðal gesta nýjasta sjónvarpsþáttar Kjarnans á Hringbraut.

Björn Leví Gunnarsson
Auglýsing

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, segir að ef sýnt verði fram á að þing­maður hafi gefið út til­hæfu­lausan reikn­ing til Alþing­is, t.d. vegna akst­urs vegna próf­kjörs­þátt­töku, þá eigi við­kom­andi að þurfa að axla ábyrgð. „Mér fynd­ist það vera sjálf­sagt að fólk þyrfti að segja af sér í því til­viki. Það er ekki hægt að þvinga þing­menn til þess að gera að.“

Hann gagn­rýnir orð­ræðu um að í kosn­ingum felist ein­hvers­konar synda­af­lausn fyrir þing­menn. „Tækni­lega séð gæti þing­maður farið á Kanarí í fjögur ár og ekki látið sjá sig á þingi. Að sjálf­sögðu gerir það eng­inn og von­andi gerir það eng­inn í fram­tíð­inni. En fólk getur sleppt því að mæta í vinn­una og tekið þessu í næstu kosn­ing­um. Mér finnst ofurá­hersla á það að allar syndir verða afléttar í næstu kosn­ingum ef þú kemst inn, ellegar ekki. Að við eigum að geyma allan dóm þangað til í næstu kosn­ing­um, og svo þurfum við ekk­ert að hugsa um það meira.“ Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjasta þætti Kjarn­ans á Hring­braut þar sem fríð­inda­greiðslur til þing­manna eru til umfjöll­un­ar. Hægt að sjá þátt­inn í heild sinni hér að neð­an.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, var hinn gestur þátt­ar­ins. Hann sagði að þing­menn væru komnir „djúpt inn á grátt svæði“ þegar þeir væru að láta Alþingi greiða fyrir akst­urs­kostnað sinn í próf­kjörum eða í aðdrag­anda kosn­inga. Eðli­legt væri að þeir sem yrðu upp­vísir að slíku end­ur­greiddu þann kostnað og byð­ust sjálfir til að gera það.

Auglýsing
Steingrímur sagði það löngu tíma­bært að upp­lýs­ingar um greiðslur til þing­manna væru gegn­særri. Nú þegar væri búið að birta fastar greiðslur til þeirra á þessu ári og í næstu viku muni birt­ast upp­lýs­ingar um breyti­legan kostnað sem hafi verið greiddur fyrstu tvo mán­uði árs­ins. Næsta skref yrði að birta upp­lýs­ingar allt að tíu ár aftur í tím­ann.

Þá sé á leið­inni grein­ar­gerð frá skrif­stofu Alþing­is, sem fer með fram­kvæmd og eft­ir­lit með greiðslum til þing­manna.  Stein­grímur segir að skrif­stofan hafi stundum hafnað því að greiða reikn­inga og að þing­menn hafi þá unað því. „Það er mis­skiln­ingur að þetta hafi verið sjálf­virkt.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent