Stjórn Klakka, eignarhaldsfélags sem heldur utan um 100 prósenta hlut í eignaleigufyrirtækinu Lykli, hefur boðað til hluthafafundar næsta þriðjudag þar sem lagt verður til að kaupaukagreiðslur til stjórnenda og stjórnar verði dregnar til baka.
Frá þessu er greint í Markaðnum í dag, en í desember síðastliðnum samþykkti hluthafafundur tillögu um að kaupaukakerfi fyrir stjórnarmenn og stjórnendur félagsins, og hefðu heildarbónusgreiðslur geta orðið 550 milljónir króna.
Greint var frá því í Markaðinum í desember í fyrra að hluthafafundur Klakka hefði samþykkt tillögu að kaupaukakerfi fyrir níu stjórnendur og stjórnarmenn félagsins. Hefðu heildarbónusgreiðslur getað numið allt að 550 milljónum króna að tilteknum skilyrðum uppfylltum.
Ákveðið var að draga þær til baka, og á eftir að kjósa um það formlega, eins og áður segir. Í tilkynningu vegna ákvörðunarinnar, um að draga kaupaukagreiðslurnar til baka, sagði meðal annars: „Ástæðan fyrir ákvörðuninni eru hin hörðu viðbrögð sem kaupaukagreiðslurnar hafa vakið hjá almenningi. Stjórnin hefur hlýtt á þær athugasemdir sem fram hafa komið og og telur að óhjákvæmilegt sé að bregðast við til að skapa traust í garð félagsins. Slíkt traust sé enda grundvallaratriði fyrir alla sem stunda viðskipti á Íslandi. Stærsta eign Klakka er Lykill, sem hefur verið umsvifamikið í fjármögnun bifreiða- og atvinnutækja hér á landi á síðustu árum. Vill stjórn Klakka með þessari ákvörðun stuðla að því að friður geti ríkt um Lykil og þannig hámarkað virði félagsins í þágu allra hluthafa.“