Halla Gunnarsdóttir ráðin ráðgjafi forsætisráðherra

Halla Gunnarsdóttir hefur verið ráðin ráðgjafi Katrínar Jakobsdóttur en hún hefur þegar hafið störf.

Halla Gunnarsdóttir
Halla Gunnarsdóttir
Auglýsing

Halla Gunn­ars­dóttir hefur verið ráðin ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra. Hún hóf störf þann 1. mars síð­ast­lið­inn og mun hafa aðsetur í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Þetta kemur fram í frétt ráðu­neyt­is­ins. 

Sam­kvæmt frétt­inni mun Halla leiða starf stýri­hóps um heild­stæðar úrbætur að því er varðar kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Meg­in­hlut­verk hóps­ins er að beita sér fyrir fram­sæknum og sam­hæfðum aðgerðum stjórn­valda gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi og kyn­ferð­is­legri og kyn­bund­inni áreitni og að Ísland sé í fremstu röð í bar­átt­unni gegn hvers kyns kyn­bundnu ofbeldi.

Auglýsing

„Halla hefur víð­tæka reynslu af mann­rétt­inda­málum og bar­átt­unni gegn kyn­bundnu ofbeldi og áreitni. Hún starf­aði áður sem skrif­stofu­stjóri hjá breska Kvenna­list­anum (The Women’s Equ­ality Par­ty) þar sem hún leiddi stefnu­mótun sam­tak­anna. Þá starf­aði Halla á alþjóð­legri lög­manns­stofu í Lund­ún­um, McAll­ister-Oli­vari­us, sem sér­hæfir sig í málum sem lúta að kyn­bund­inni áreitni á vinnu­stöð­um, innan mennta­stofn­ana og á inter­net­inu.

Á árunum 2009 til 2013 var Halla aðstoð­ar­maður Ögmundar Jón­as­son­ar, inn­an­rík­is­ráð­herra og heil­brigð­is­ráð­herra, þar sem hún leiddi meðal ann­ars sam­ráð um með­ferð nauðg­un­ar­mála og hafði frum­kvæði að vit­und­ar­vakn­ingu um kyn­ferð­is­legt, and­legt og lík­am­legt ofbeldi gegn börnum sem var skipu­lögð í sam­starfi vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is, inn­an­rík­is­ráðu­neytis og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is,“ segir í frétt­inn­i. 

Jafn­framt kemur fram að Halla sé fyrrum blaða­maður og hafi verið virk í bar­átt­unni gegn kyn­bundnu ofbeldi um langa hríð, þar á meðal á vett­vangi Femínista­fé­lags Íslands.

Eins og Kjarn­inn hefur fjallað um þá hafa aldrei fyrr verið jafn margir aðstoð­ar­menn eins og hjá núver­andi rík­is­stjórn. Aðeins Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra er með einn aðstoð­ar­mann en allir hinir ráð­herr­arnir eru með tvo, eins og þeir hafa leyfi til. 

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans er Halla ekki ráðin inn í ráðu­neytið sem aðstoð­ar­maður heldur ráð­gjafi. Lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands var breytt árið 2011 með þeim hætti að heim­ild til að fjölga aðstoð­ar­mönnum ráð­herra var útvíkkuð þannig að hver og einn þeirra má ráða tvo slíka. Auk þess var sett inn heim­ild fyrir rík­is­stjórn­ina að ráða þrjá aðstoð­ar­menn til við­bótar ef þörf kref­ur. Hún hefur nú þegar ráðið sér tvo slíka, ann­ars vegar Láru Björg Björns­dóttur upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar og hins vegar Unni Brá Kon­ráðs­dóttur sem mun leiða vinnu rík­is­stjórn­ar­innar um breyt­ingar á stjórn­ar­skránni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent