Bandaríska fyrirtækið Assessment Systems, þjónustuaðili prófakerfis Menntamálastofnunar, hefur viðurkennt að mistök í uppsetningu evrópsks gagnagrunns stofnunarinnar hafi truflað próftöku rúmlega 4.300 íslenskra nemenda sem hugðust þreyta samræmd próf í íslensku og ensku í síðustu viku. Villan varð til þess að margir nemendur komust ekki inn í prófin og urðu frá að hverfa eða svöruðu prófinu við óviðunandi kringumstæður. Þetta hafði umtalsverða röskun í för með sér á skipulagi skólastarfs 9. bekkinga víða um land. Sjálfstæð athugun utanaðkomandi aðila verður gerð opinber.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Menntamálastofnun.
Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar, segir að enginn vafi sé á því að endanleg ábyrgð á framkvæmd samræmdra könnunarprófa í grunnskólum liggi hjá Menntamálastofnun.
Í tilkynningunni segir að Menntamálastofnun hyggist gera allt sem í hennar valdi stendur til að samskonar röskun verði ekki aftur og taki undir orð Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra að mistökin séu óásættanleg fyrir íslenskt menntakerfi.
„Hefur því verið gengið frá ráðningu óháðs aðila til að fara yfir ferlið í heild sinni og leiða í ljós hvort eitthvað í undirbúningi stofnunarinnar hafi mátt betur fara. Niðurstöður þeirrar sjálfstæðu athugunar verða gerðar opinberar. Menntamálastofnun hefur einnig óskað eftir því við mennta- og menningarmálaráðuneytið að kallaður verði saman sérfræðihópur sem hefur eftirlit með framkvæmd samræmdra könnunarprófa.
Menntamálastofnun mun, í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið, skera úr um hvernig farið verður með niðurstöður samræmdra könnunarprófa nú í ár. Niðurstaða hvað það varðar mun liggja fyrir eftir fund með hagsmunaaðilum á miðvikudag. Gætt verður sérstaklega að hagsmunum allra nemenda og jafnræði milli þeirra tryggt,“ segir í tilkynningunni.
Arnór biður nemendur, foreldra, kennara og skólastjórnendur innilega afsökunar á þeim mistökum sem urðu við framkvæmd prófanna í síðustu viku. „Þó að ástæðan hafi verið villa í tölvukerfi Assessment Systems þá er enginn vafi á því að endanleg ábyrgð á framkvæmd samræmdra könnunarprófa í grunnskólum liggur hjá Menntamálastofnun. Við þurfum að skoða vel hvort ástæða sé til að gera breytingar á framkvæmdinni og mun sú skýrsla, sem nú er kominn í vinnslu, vonandi gagnast við þá vinnu,“ segir hann.