„Við verðum bara að segja eins og er að auðvitað tekur þetta á“

Þingmaður Vinstri grænna segir að ekki þurfi að koma á óvart að hún hafi greitt atkvæði með vantrauststillögu á Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra í síðustu viku og að hún vilji ekki spá fyrir um það hvort ríkisstjórnarsamstarfið haldi út kjörtímabilið.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.
Auglýsing

Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, þing­maður VG, segir að ekki þurfi að koma neinum á óvart að hún hafi greitt atkvæði með van­traust­s­til­lögu stjórn­ar­and­stöð­unnar á Sig­ríði Á. And­er­sen í síð­ustu viku. Þetta kom fram í Víg­lín­unni á Stöð 2 um helg­ina. 

Við verðum bara að segja eins og er að auð­vitað tekur þetta á. Auð­vitað tekur það á þegar tveir þing­menn í þing­flokki eru á annarri línu en aðrir þing­menn og við þurfum bara að horfast í augu við það og ræða það opin­skátt,“ segir hún þegar hún er spurð út í and­rúms­loftið í flokkn­um. Hún sé aftur á móti ekki sam­mála því að ástæða sé fyrir því að kanna stöðu hennar sér­stak­lega, eða stöðu Andr­ésar Inga Jóns­sonar sem einnig greiddi atkvæði með til­lög­unn­i. 

Hún seg­ist ekki ætla að færa sig um set og að hún ætli sér að halda áfram að vera í Vinsti græn­um. Hún styðji Katrínu Jak­obs­dótt­ur, for­mann flokks­ins, en áskilji sér rétt til að kjósa eftir sinni sann­fær­ingu í ákveðnum málum eins og í þessu til­felli.

Auglýsing

Staða Sig­ríðar við­kvæm

„Þegar ég útskýrði mína afstöðu gagn­vart þessu rík­is­stjórn­ar­sam­starfi þá var Sig­ríður og hennar emb­ætt­is­færslur ein af þeim ástæðum sem ég til­tók sem voru þess vald­andi að ég greiddi gegn rík­is­stjórn­ar­sam­starf­in­u,“ segir Rósa. Hún segir jafn­framt að staða Sig­ríðar sé gríð­ar­lega við­kvæm.

Hún telur að þing­menn ættu að temja sér það almennt að segja ekki eitt í dag og annað á morg­un. „Við eigum að vera sam­kvæm sjálfum okkur í póli­tík­inni og ég er að reyna það. Þetta rímar full­kom­lega við mínar áherslur á þing­inu í júní síð­ast­liðn­um,“ bætir hún við. 

Rósa seg­ist treysta ráð­herrum VG fylli­lega, enda hljómi fyr­ir­ætl­anir þeirra í sínum mála­flokkum vel, og muni hún styðja þær því þær séu góð­ar. „En ég er búin að útskýra mína afstöðu gagn­vart þessu stjórn­ar­sam­starfi. Ég sagði hér í nóv­em­ber og des­em­ber að ég teldi gott fyrir íslenska kjós­endur að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fengi frí frá völd­um,“ segir hún. 

Hvernig eiga vinnu­brögðin að vera?

Rósa telur að í ljósi atburða síð­ustu viku þá þurfi þing­menn að velta því fyrir sér hvernig vinnu­brögð þeir vilji iðka í íslenskri póli­tík. „Það hefur verið mikið ákall um ný vinnu­brögð hér frá hruni. Þau áköll komu líka frá Rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis og ég held að þetta sé mjög alvar­leg áminn­ing fyrir okkur að fara eftir þeim skýru línum sem þar komu fram og hlusta og hlýða á það ákall sem hefur verið í sam­fé­lag­inu um ný vinnu­brögð,“ segir hún. 

Hún telur jafn­framt að þing­mönnum beri að kjósa sam­kvæmt sann­fær­ingu sinni og að öllum þing­mönnum sé hollt að íhuga þau gildi sem þeir eiga að starfa eft­ir.

Rósa vill ekki spá fyrir um það hvort rík­is­stjórnin muni halda út kjör­tíma­bil­ið. Hún segir að mikil áskorun felist í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu, þ.e. að leiða saman flokka á sitt hvorum ásn­um. Það sé mikið og krefj­andi verk­efni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent