Á árunum 2015 til 2017 voru spænska og þýska þau tungumál sem flestir lærðu sem þriðja erlenda tungumálið líkt og fyrri ár. Skólaárið 2012 til 2013 lærðu í fyrsta skipti fleiri nemendur spænsku en þýsku og hefur sú þróun haldið áfram síðustu ár. Alls lærðu 4.200 nemendur spænsku skólaárið 2016 til 2017 en 3.837 nemendur lærðu þýsku. Stúlkur læra frekar spænsku en um það bil 2.500 stúlkur voru skráðar í spænskuáfanga hvert skólaár frá 2015 til 2017 á móti um það bil 1.900 stúlkum í þýsku. Hjá piltum er þýska vinsælli en spænska en tæplega 1.900 piltar lærðu þýsku á árunum 2015 til 2017 á móti rúmlega 1.600 piltum í spænsku.
Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar.
Jafnframt segir að breyting hafi orðið skólaárið 2014 til 2015 að piltar sem lærðu erlend tungumál hafi verið fleiri en stúlkur, þótt munurinn hafi verið óverulegur. Á skólaárinu 2015 til 2016 fækkaði piltum sem lærðu erlend tungumál um tæp þrjú prósentustig. Hlutfall stúlkna sem lærðu erlend tungumál stóð hins vegar í stað og eru stúlkur því aftur orðnar fleiri en piltar í tungumálanámi.
Framhaldsskólanemendum sem læra erlend tungumál fækkar lítillega
Skólaárið 2015 til 2016 lærðu 70,8 prósent framhaldsskólanema að minnsta kosti eitt erlent tungumál og var það fækkun um 1,4 prósentustig milli ára. Hlutfallslega fjölgaði nemendum í tungumálanámi svo aftur lítillega skólaárið 2016 til 2017, þegar 71,6 prósent framhaldsskólanemenda lærðu að minnsta kosti eitt erlent tungumál. Hlutfall nemenda sem lærðu erlend tungumál var á bilinu 72 til 74 prósent skólaárin 2003 til 2015. Samkvæmt tölum sem hér birtast, úr gagnasöfnun Hagstofunnar fyrir skólaárin 2015 til 2016 og 2016 til 2017, eru því vísbendingar um að nemendum í tungumálanámi fari fækkandi.
Þegar fjöldatölur eru skoðaðar hefur nemendum sem læra erlend tungumál fækkað úr 17.400 skólaárið 2014 til 2015 í tæp 16.200 skólaárið 2016 til 2017 sem er í samræmi við um 1.500 nemenda fækkun á framhaldsskólastigi á tímabilinu. Í mörgum framhaldsskólum tók breytt skipulag námsbrauta til stúdentsprófs gildi haustið 2015, þar sem nám til stúdentsprófs var stytt. Þar með fækkaði áföngum í erlendum tungumálum sem nemendur þurfa að taka til stúdentsprófs og gæti það að hluta til skýrt fækkun nemenda í tungumálanámi.
Vinsældir kínverskunáms aukast
Flestir framhaldsskólanemendur lærðu ensku og voru þeir 13.683 skólaárið 2015 til 2016 og 13.405 árið eftir. Næstflestir nemendur lærðu dönsku, 6.509 talsins skólaárið 2015 til 2016 og 5.964 skólaárið 2016 til 2017. Nemendum í dönsku fækkaði þó töluvert milli ára, eða um tæplega 17 prósentustig frá skólaárinu 2014-2015 til 2016–2017.
Vinsældir kínverskunáms í framhaldsskóla hafa aukist en skólaárið 2015 til 2016 lærðu 24 nemendur kínversku, 14 piltar og 10 stúlkur. Á skólaárinu 2016 til 2017 voru nemendurnir 18. Áður höfðu mest 18 nemendur verið skráðir í kínversku skólaárið 2010 til 2011.
Að meðaltali lærðu nemendur í framhaldsskólum 1,31 tungumál á ári 2015 til 2017 sem er sambærilegt við fyrri skólaár. Flestir nemendur læra tvö tungumál á sama skólaári, eða um 45 prósent þeirra nemenda sem læra tungumál, og hefur það hlutfall haldist svo til óbreytt frá 2013 til 2014.