Stjórn VR hyggst leggja fram tillögu á aðalfundi N1 um að öllum starfsmönnum fyrirtækisins skuli tryggð sama kjarahækkun og forstjóri félagsins fékk en laun hans voru 5,8 milljónir á mánuði á síðasta ári og hækkuðu um 20,6 prósent á milli ára eða um rúma milljón á mánuði.
Í tilkynningu frá stjórn VR kemur fram að þau geti ekki setið aðgerðalaus hjá þegar N1 greiði forstjóra fyritækisins 20,6 prósenta hækkun í kjörum milli ára.
„Ef fyrirtækið er svo vel rekið og í svo miklum blóma að það telji sér fært að skammta þeim sem stýrir því svo vel væri eðlilegt að það umbuni þeim sem sjálf verkin vinna með sama hætti. Það er sanngjarnt og eðlilegt,“ segir í tilkynningunni.
Tillagan sem stjórn VR hyggst láta leggja fram hljóðar svo: „Aðalfundur N1, haldinn mánudaginn 19. mars að Dalvegi 10-14 Kópavogi, ályktar að öllum starfsmönnum N1 skuli tryggð sama kjarahækkun og forstjóri félagsins fékk á árinu 2017. Laun forstjóra voru á árinu 2017 70,4 m.kr., eða 5,8 m.kr. á mánuði, og hækkuðu þau um 20,6% milli áranna 2016 og 2017.“
Stjórnin segir að þar sem stærstu eigendur N1 séu lífeyrissjóðir launafólks hljóti það að vera eðlileg krafa að einmitt hið duglega launafólk sem þar starfi skuli einnig njóta ávaxtanna, „sérstaklega þegar svo vel gengur í starfsemi fyrirtækisins að það telur sæmandi að greiða forstjóranum sambærileg laun og launahæsta bankastjóra landsins.“