Facebook hrynur í verði

Eftir að gögn voru gerð opinber sem sýndu notkun Cambridge Analytica á notendaupplýsingum um 50 milljónir manna í Bandaríkjunum, hefur gengi bréfa fyrirtækisins hrunið.

FAcebook
Auglýsing

Mark­aðsvirði Face­book hefur hrunið í dag, eða um tæp 7 pró­sent. Mark­aðsvirði félags­ins er nú rúm­lega 500 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða um 50 þús­und millj­arðar króna, og hefur verð­mið­inn lækkað um 30 millj­arða Banda­ríkja­dala í dag, eða um 3 þús­und millj­arða króna. 

Ástæðan fyrir lækk­un­inni er sögð, meðal ann­ars í umfjöllun Wall Street Journal, vera ótti fjár­festa við að Face­book muni lenda í vand­ræðum vegna þess hve illa fyr­ir­tæk­inu hefur gengið við að tryggja öryggi og notkun þriðja aðila á per­sónu­gögnum um not­end­ur. 

Um helg­ina greindi New York Times frá því, að grein­ing­ar­fyr­ir­tækið Cambridge Ana­lyt­ica, sem meðal ann­ars vann náið með fram­boði Don­alds Trump Banda­ríkja­for­seta, hefði safnað upp­lýs­ingum um 50 millj­ónir not­enda í Banda­ríkj­un­um, sem meðal ann­ars voru nýttar til að ná betur til fólks í kosn­inga­her­ferð­um. Það var ekki gert í gegnum aug­lýs­ingar ein­göngu, heldur með gervi­vef­síðum og not­end­um, þar sem litlu sem engu þurfti að fjár­festa í til að ná til fólks með skila­boð.

Auglýsing

Á meðal stjórn­ar­manna Cambridge Ana­lyt­ica var fyrr­ver­andi ráð­gjaf Trumps, Steve Bann­on.

Upp­lýs­ing­unum var safnað saman í gegnum per­sónu­leika­próf um 270 þús­und not­enda, og söfn­uð­ust einnig upp­lýs­ingar um vini þeirra sem tóku próf­in. 

Í yfir­lýs­ingu frá Face­book segir að fyr­ir­tækið hafi fengið endu­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki til að skoða hvort Cambridge Ana­lyt­ica hafi notað gögnin eftir að farið var fram á að þeim yrði eytt, sem var árið 2015. Sam­kvæmt umfjöllun New York Times var gögn­unum ekki eytt þá, og voru þau notuð meðal ann­ars í þaul­skipu­lögðum aðgerðum til að ná kosn­inga­á­róðri til fólks, raunar bæði í Bret­landi og Banda­ríkj­un­um. 

Face­book segir að ef það komi í ljós, að þetta hafi verið gert, þá sé það gróft brot á skil­málum sem fyr­ir­tækið vinnur eftir þegar kemur að með­höndlun upp­lýs­inga um not­end­ur. 

Í umfjöllun Bloomberg segir að fjár­festar ótt­ist hið ver­sta, og að það komi í ljós að Face­book hafi brugð­ist þegar komið að öryggi not­enda. Það geti svo leitt til alvar­legra afleið­inga fyrir rekstur fyr­ir­tæk­is­ins og fram­tíð­ar­á­form.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent