Kallar dómsmálaráðherra til sín vegna flóttamannamála

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hyggst kalla Sigríði Andersen dómsmálaráðherra á sinn fund til að ræða nýja reglugerð sem þrengir að túlkun reglna sem gilda um alþjóðlega vernd.

Sigríður Á. Andersen
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hyggst kalla Sig­ríði And­er­sen dóms­mála­ráð­herra á sinn fund til að ræða nýja reglu­gerð sem þrengir að túlkun reglna sem gilda um alþjóð­lega vernd.

Þetta kom fram í svari Katrínar við fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­sonar for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar á Alþingi í morg­un. Logi spurði Katrínu út í þessa nýju reglu­gerð, sem Rauði kross­inn segir þrengja að túlkun um hvenær sér­stakar ástæður eigi við í málum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd og hvenær beri að taka mál sér­stak­lega við­kvæmra ein­stak­linga til efn­is­legrar með­ferð­ar.

Logi sagði dóms­mála­ráð­herra hafa hunsað vilja lög­gjafans full­kom­lega með nýrri reglu­gerð. „Veik börn sem áður hefðu átt mögu­leika á skjóli og öryggi verða nú send úr land­i.“ Hann spurði hvað Katrínu fynd­ist um þessa reglu­gerð og sagði þetta „ófor­skammað, ómann­úð­legt, kald­rifjað og hlýtur að vera ísköld vatns­gusa beint framan í Vinstri græn sem talað hafa fyrir meiri mannúð í þessum mála­flokki. Nú reynir virki­lega á hvort mál­flutn­ingur þeirra eru bara orðin tóm.“

Auglýsing

Katrín sagð­ist ekki hafa vitað af þess­ari reglu­gerð. Hún hafi óskað eftir sam­tali milli for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins til að fara yfir gagn­rýni Rauða kross­ins og hvernig sé rétt að bregð­ast við.

Rauði kross­inn hefur gert alvar­legar athuga­semdir við þröng skil­yrði reglu­gerð­ar­innar sem eru fyrir því að taka megi umsókn til efn­is­með­ferðar vegna heilsu­fars­á­stæðna. Hingað til hafi verið lagt ein­stak­lings­bundið mat á heilsu umsækj­enda og hvaða áhrif end­ur­send­ing hefur á heilsu þeirra, óháð því hvort heil­brigð­is­kerfi í við­töku­ríki er í stakk búið til að veita við­kom­andi full­nægj­andi með­ferð. Reglu­gerðin taki hins vegar fram í dæma­skyni að þeir ein­stak­lingar sem geti fallið þarna undir séu umsækj­endur sem glíma við mikil og alvar­leg veik­indi, gerð er krafa um skyndi­legan og lífs­hættu­legan sjúk­dóm og að með­ferð við honum sé aðgengi­leg hér á landi en ekki í við­töku­ríki.

„Í kafla reglu­gerð­ar­innar sem fjallar um sér­við­mið er varðar börn og ung­menni er tekið fram að þau við­mið sem komi fram í reglu­gerð­inni (1. og 3-7. mgr.) eigi jafn­framt við um börn. Þannig virð­ist gert ráð fyrir að börn sem eru haldin sjúk­dómi sem ekki nær þeim alvar­leika­þrös­k­uldi að telj­ast skyndi­legur og lífs­hættu­legur skuli end­ur­send til við­töku­rík­is, jafn­vel þó að for­eldrar barns­ins muni þurfa að greiða fyrir með­ferð við sjúk­dómnum í við­töku­ríki, án þess að frekara mat fari fram á ein­stak­lings­bundnum aðstæðum barns­ins,“ segir í frétt Rauða kross­ins.

Rauði kross­inn telur að efni nýrrar reglu­gerðar gangi að miklu leyti gegn almennri túlkun og skýr­ingu á lögum um útlend­inga, mark­miðum þeirra og athuga­semdum í grein­ar­gerð með frum­varpi sem varð að núgild­andi lögum um útlend­inga. Þá feli ákvæði reglu­gerð­ar­innar í sér aft­ur­för og skerð­ingu á rétt­indum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent