Forsætisráðherra: Þingmenn hafa „málfrelsi“ og það ber að virða

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur stutt lækkun kosningaaldurs og hefur barist fyrir því máli á Alþingi í gegnum tíðina. Hún segir málið ekki hafa verið í stjórnarsáttmálanum, þar sem eining náðist ekki um það.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra, segir það ekki hafa komið á óvart, að skiptar skoð­anir hafi verið um það meðal þing­manna að lækka kosn­inga­aldur í 16 ár. Nú er útlit fyrir að málið nái ekki fram að ganga, en sjálf hefur hún flutt mál sem þetta í þing­inu og barist fyrir lækkun kosn­inga­ald­urs og auk­inni stjórn­mála­þátt­töku ungs fólks.  „Hér ríkir mál­frelsi meðal þing­manna. Þetta mál er ekki hluti af stjórn­ar­sátt­mála - meðal ann­ars vegna þess að það voru um það deildar mein­ingar innan stjórn­ar­flokk­anna - heldur var þetta þing­manna­mál, en því er ekki að leyna, að ég hef verið fylgj­andi lækkun kosn­inga­ald­urs almennt,“ segir Katrín.  Hún segir það vera jákvætt að sjá stuðn­ing mynd­ast við mál, þvert á flokkslínur og meiri- og minni­hluta, og það sé gott fyrir stjórn­mála­starfið í land­in­u. 

Eins og greint var frá í frétta­skýr­ingu á vef Kjarn­ans í dag, þá er útlit fyrir að frum­varp um lækkun kosn­inga­ald­urs í 16 ár nái ekki fram að ganga fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í vor, en fyrir liggur að um 9 þús­und ung­menni bæt­ast í hóp kjós­enda nái málið fram að ganga. 

Andrés Ingi Jóns­­son, þing­­maður Vinstri grænna og fyrsti flutn­ings­­maður frum­varps­ins, segir í við­tali við Kjarn­ann að eins og mæl­enda­­skráin líti út í þing­inu sé útlit fyrir að umræðan um málið verði lengri en tími sé til að klára í dag. „Það þýðir að við náum ekki að klára málið fyrir páska­hlé og þá er orðið hæpið að við náum að lækka kosn­­inga­aldur fyrir kosn­­ing­­arnar í vor.“

Auglýsing

Á Alþingi hefur í dag staðið yfir mál­þóf þing­­manna úr Sjálf­­stæð­is­­flokki, Mið­­flokki og Flokki fólks­ins til að tefja fyrir atkvæða­greiðslu um frum­varp­ið. Öruggur meiri­hluti er fyrir mál­inu á þingi, sam­­kvæmt við­­mæl­endum Kjarn­ans. 

Mál­þóf þeirra gerir það hins vegar að verkum að ekki næst að greiða atkvæði um það. Það þýðir því að vilji minn­i­hluta þing­­manna nær fram að ganga, að minnsta kosti í bili, og 16 og 17 ára Íslend­ingar fá ekki að kjósa í sveita­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­unum í lok maí líkt og stefnt var að. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent