Viðreisn vildi Áslaugu á lista

Áslaug Friðriksdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins íhugaði að taka sæti á lista Viðreisnar fyrir borgarstjórnarkosningar í vor.

Pawel Áslaug
Auglýsing

Áslaug Frið­riks­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins íhug­aði að taka sæti á lista Við­reisnar fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í vor. Þetta kom fram í ítar­legu við­tali Áslaugar við Mann­líf sem kom út á föstu­dag og lesa má í heild sinni hér.

„Ég á vini í Við­reisn og til tals kom að ég tæki sæti á lista flokks­ins. Eftir að hafa íhugað málið ákvað ég að gera það ekki,“ sagið Áslaug, en hún verður ekki á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins eftir að hafa lotið í lægra haldi fyrir Eyþóri Arn­alds í odd­vita­kjöri og ekki boðið sæti neðar á lista af kjör­nefnd flokks­ins í Reykja­vík.

Við­reisn birti lista sinn á mánu­dag þar sem fram kom að Þór­dís Lóa Þór­halls­dóttir rekstr­ar­hag­fræð­ingur muni leiða lista flokks­ins. Pawel Bar­toszek stærð­fræð­ingur er í öðru sæti og Diljá Ámunda­dótt­ir, almanna­teng­ill og vara­­borg­­ar­­full­­trúi, er í þriðja sæt­in­u.

Auglýsing

Í við­tal­inu segir Áslaug Pawel vera mjög vera mjög sterkan hægri mann sem bjóði sig fram nú í kosn­ing­unum og að hann eigi svo sann­ar­lega erindi í borg­ar­stjórn. „Hann er því miður far­inn úr okkar flokki. Hann er með mjög líka sýn og þá sem var að þró­ast hjá Sjálf­stæð­is­flokknum á sínum tíma og skrif hans sýna að hann hefur góðar hug­myndir í mörgum öðrum mál­um. Að missa mann eins og hann er auð­vitað mjög leið­in­legt.

Fjöldi fólks hefur snúið baki við Sjálf­stæð­is­flokknum af þessum og öðrum sökum á und­an­förnum miss­er­um. Skemmst er að minn­ast stofn­unar Við­reisnar þar sem finna má ógrynni af fyrr­ver­andi sjálf­stæð­is­mönn­um, oft með ein­hverjar skoð­anir sem þóttu ekki heppi­legar innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, fyrr­ver­andi vara­for­maður flokks­ins leiðir nú Við­reisn og áður­nefndur Pawel Bar­toszek, auk ann­arra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent