Guðrún Tinna Ólafsdóttir hefur verið ráðin til Fríhafnarinnar sem rekstarstjóri verslunarsviðs sem er nýtt starf og hluti af skipulagsbreytingum. Tinna mun hefja störf í byrjun apríl. Undir verslunarsvið heyrir daglegur rekstur verslana Fríhafnarinnar, ásamt almennum sölu-, markaðs- og rekstarmálum.
Tinna er með M.S. gráðu í fjármálum. Hún hefur víðtæka og góða reynslu af smásölu, rekstri, markaðsmálum og stefnumótun. Hún hefur m.a. starfað sem framkvæmdastjóri íslenska barnafatamerkisins Ígló ehf. og hjá Baugi Group þar sem hún vann með stjórnendum smásölufyrirtækja í Danmörku, Svíþjóð og á Íslandi. Þar áður starfaði Tinna hjá Kauphting Bank Luxembourg og Verðbréfamarkaði Íslandsbanka. Í dag situr Tinna í stjórn fasteignafélagsins Regins hf. og er stjórnarformaður Svanna, lánatryggingasjóðs kvenna.
Tinna er gift Karli Pétri Jónssyni og saman eiga þau fimm börn.