Sendiherra Breta: Ábyrgðin er Rússa

Fyrsta taugaeitursárásin frá seinni heimstyrjöld er gróft brot á alþjóðalögum og á ábyrgð Rússa, segir sendiherra Breta á Íslandi.

Pútín
Auglýsing

Mich­ael Nevin, sendi­herra Breta á Íslandi, segir í grein í Frétta­blað­inu í dag, að ábyrgðin á fyrstu tauga­eit­ursárásinni frá seinni heim­styrj­öld, í borg­inni Salisbury, þar sem feðgin hnigu nið­ur, sé Rússa.

Þetta kemur fram í grein hans í Frétta­blað­inu í dag. Hann segir að alþjóða­sam­fé­lagið standi með Bretum vegna þess að ekki sé hægt að líða brot Rússa á alþjóða­lög­um.

„Við eigum ekk­ert sök­ótt við rúss­nesku þjoð­ina, sem getur verið stolt af afrekum sínum á menn­ing­ar­lífið í gegnum ald­irn­ar. Við munum aldrei gleyma seigl­unni sem rúss­neska þjóðin sýndi á dögum síð­ari heim­styrj­ald­ar­inn­ar, né sam­eig­in­legri bar­áttu okkar gegn nas­ism­an­um. En við deilum öll skyldu til að and­æfa metn­aði ráða­manna í Kreml til að kljúfa og veikja alþjóða­sam­fé­lag­ið. Í hvert sinn sem rúss­neska rík­is­kerfið brýtur alþjóða­lög, eflist hættan sem af því stafar,“ segir í Nevin í grein í Frétta­blað­inu.

Auglýsing

Eins og greint var frá í gær, þá hafa íslensk stjórn­völd ákveðið að taka þátt í alþjóð­legum aðgerðum gegn Rúss­um. Íslenskir ráða­menn munu ekki fara á HM í fót­bolta í sum­ar, og munu ekki funda með rúss­neskum á næstu miss­er­um.

„Árásin eralvar­­legtbrot á alþjóða­lögum og ógnun við öryggi og frið í Evr­­ópu. Efna­vopnum hefur ekki verið beitt í álf­unni frá lokum síð­­­ari heims­­styrj­­ald­­ar. Við­brögð rús­s­­neskra stjórn­­­valda við árásinni hafa hingað til verið ótraust­vekj­andi og yfir­­lýs­ingar þeirra ótrú­verð­ug­­ar. Frænd­­þjóðir okkar á Norð­­ur­lönd­um, mörg sam­­starfs­­ríki Íslands í Atl­ants­hafs­­banda­lag­inu, og helstu aðild­­ar­­ríki Evr­­ópu­­sam­­bands­ins hafa ákveðið að grípa til aðgerða gagn­vart rús­s­­neskum stjórn­­völd­­um. Í flestum til­­vikum vísa þessi ríki rús­s­­neskum stjórn­­­ar­er­ind­rekum úr landi. Af hálfu Íslands fel­­ast aðgerð­­irnar í því að öllum tví­­hliða fundum með rús­s­­neskum ráða­­mönnum og hátt­­settum emb­ætt­is­­mönnum verður frestað um óákveð­inn tíma. Af þeirri ákvörðun leiðir að íslenskir ráða­­menn munu ekki sækja heims­­meist­­ara­­mótið í Rús­s­landi á kom­andi sum­­ri,“ segir í yfir­­lýs­ing­unni, en eins og kunn­ugt er verður Ísland meðal þátt­­töku­­þjóða á HM, í fyrsta skipti og sem fámennsta landið í sög­unni sem tryggt hefur sér þátt­­töku­rétt á HM.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent