Alls 661 óstaðsettir í hús í Reykjavík

Þeim sem eru skráðir óstaðsettir í hús í Reykjavík fjölgaði um nálægt fjórðung í fyrra. Frá byrjun árs 2014 hefur þeim fjölgað um 74 prósent.

img_2806_raw_1807130279_10016428756_o.jpg
Auglýsing

Óstað­settum í Reykja­vík, þeim sem eru ekki með skráð lög­heim­ili eða býr á göt­unni, fjölg­aði um 74 pró­sent á frá byrjun árs 2014 og fram að síð­ustu ára­mót­um. Þeir eru nú 661 tals­ins og hafa aldrei verið fleiri. Í fyrra fjölg­aði þeim um 23,7 pró­sent alls. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hag­stofu Íslands um mann­fjölda eftir byggð­ar­kjörn­um.

Í­búum í Reykja­vík hefur fjölgað um 3,7 pró­sent frá byrjun árs 2014 og fram til síð­ustu ára­móta. Alls bjuggu 124.847 manns í höf­uð­borg­inni í byrjun þessa árs sam­kvæmt töl­un­um. Á sama tíma­bili fjölg­aði íbúum Hafn­ar­fjarðar um 7,5 pró­sent, íbúum Garða­bæjar um 10,6 pró­sent og íbúum  Kópa­vogs um 13,5 pró­sent.

Flestir búa í 105

Fjöl­menn­asta hverfi borg­ar­inn­ar, sam­kvæmt skil­grein­ingu Hag­stof­unn­ar, er Vest­ur­bær-­Syðri, þar sem búa 10.831. Íbúum þar hefur fjölgað um 3,4 pró­sent frá því í byrjun árs 2014. Næst fjöl­menn­asta hverfið er Efra-Breið­holt. Þar bjuggu 9.481 í upp­hafi árs 2018 og hafði íbúum þar fjölgað um 7,5 pró­sent frá byrjun árs 2014. Í þriðja sæti var Selja­hverfið með 8.502 íbúa. Þar hefur fjölgað um 3,3 pró­sent frá byrjun árs 2014.

Auglýsing
Í tölum Hag­stofu Íslands er einnig hægt að sjá fjölda íbúa eftir póst­núm­er­um. Þar sést að flestir höf­uð­borg­ar­búa búa í póst­núm­eri 105, eða 17.229 tals­ins. Þeim hefur fjölgað um 6,2 pró­sent á þessu sveita­stjórn­ar­kjör­tíma­bili. Innan þess póst­núm­ers er meðal ann­ars að finna Hlíð­ar, hluta Laug­ar­dals, Álfta­mýri og Múla­hverf­ið. Póst­núm­erið teygir sig auk þess alla leið niður að Snorra­braut og Norð­ur­mýrin er því einnig innan þess póst­núm­ers.

Næst fjöl­menn­asta póst­núm­erið er 112, eða Graf­ar­vog­ur. Þar búa 16.931 og íbúum þar hefur fækkað um eitt pró­sent á kjör­tíma­bil­inu.

í þriðja sæti er póst­númer 101, sem nær yfir mið­borg­ina og hluta vest­ur­bæj­ar­ins.

Þar búa 15.692 manns eða tæpu pró­senti færri en bjuggu þar í byrjun árs 2014.

Öll íbúa­fjölgun vegna útlend­inga

Kjarn­inn hefur áður greint frá því að öll íbú­a­­fjölgun í Reykja­vík í fyrra var vegna erlendra rík­­is­­borg­­ara sem fluttu til borg­­ar­inn­­ar. Erlendum rík­is­borg­urum sem búa í höf­uð­borg­inni fjölg­aði um 3.140 í fyrra og eru nú 15.640 tals­ins.

Í þeirri umfjöllun kom einnig fram að erlendum íbúum höf­uð­borg­ar­innar hefur fjölgað um 70 prósent frá því í byrjun árs 2012

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent