„Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar mun halda við og búa til félagsleg vandamál, frekar en að færa fram lausnir. Það er ekki verið að græða sár, sem við þurfum svo mjög á að halda, heldur er þetta eins og að setja plástur yfir gröft,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, um fyrstu viðbrögð bandalagsins við frumvarpi til fjármálaáætlunar sem oddvitar ríkisstjórnarinnar kynntu í gær. Frá þessu er greint í frétt ÖBÍ.
Hún segir jafnframt að í frumvarpinu felist ekki aðgerðir til að tryggja öryrkjum mannsæmandi afkomu. „Það er gert ráð fyrir auknum framlögum vegna fjölgunar öryrkja, en ekki verið að ganga fram til að bæta afkomu þeirra sem núna þurfa að reiða sig á almannatryggingarnar.“
Að auki hafi lækkun á tekjuskattsprósentu lítið að segja fyrir fólk með lægstar tekjur. Það hefði miklu jákvæðari áhrif á þau sem verst eru sett í samfélaginu að hækka persónuafsláttinn. „Það væri aðgerð sem nýttist best þeim sem minnst hafa og líka auka jöfnuð, sem er hugtak sem forsætisráherra hefur notað oftar en ég hef tölu á,“ segir Þuríður Harpa.
Í fréttinni kemur fram að Öryrkjabandalag Íslands hafi í mörg ár barist hart fyrir því að óréttlátar krónu-á-móti-krónu skerðingar verði afnumdar. Gert sé ráð fyrir að tekið verði á málinu í fjármálaáætlun en segir Þuríður Harpa að þetta þurfi að gerast núna. Það sé verið að halda fólki niðri, föstu í fátæktargildru, með kerfisbundnu ofbeldi. Því verði að ljúka strax. Það sjái það allir að það gengur ekki að einum þjóðfélagshópi sé beinlínis refsað fyrir sjálfsbjargarviðleitni. Þetta séu aðgerðir sem ekki þola bið.
Hún segir enn fremur að viðbót í heilbrigðiskerfið, átak í geðheilbrigðismálum og viðleitni til að draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga séu jákvæðir þættir. En hún spyr á móti, þótt sjúklingagjöld verði lækkuð, hvað það þýði fyrir fólk sem ekki hefur efni á þeim hvort eð er.
„Boltinn er hjá þingmönnum. Ég skora á þá að standa við yfirlýsingar sínar um aðgerðir gegn fátækt og fyrir réttlæti og því að fólk geti lifað hér með mannsæmandi hætti,“ segir hún.