Landsbankinn mátti ekki greiða starfsfólki sínu 85 milljónir í aukagreiðslur

Fjármálaeftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Landsbankinn hafi brotið gegn lögum með því að greiða starfsfólki sínu aukagreiðslur vegna tímabundins álags á árunum 2014 til 2016. Greiðslurnar fóru til 76 starfsmanna.

Landsbankinn
Auglýsing

Lands­bank­inn braut gegn reglum um kaupauka­kerfi sam­kvæmt lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki með auka­greiðslum sem komu til við­bótar föstum greiðslum til starfs­manna bank­ans á árunum 2014 til 2016. Þetta er nið­ur­staða athug­unar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á umræddum auka­greiðsl­um. Eft­ir­litið telur þó ekki ástæðu til að beita neinum við­ur­lögum vegna brots­ins.

Alls námu greiðsl­urnar 85 millj­ónum króna og voru greiddar til 76 starfs­manna sem starfa á öllum sviðum bank­ans. Hvorki banka­stjóri Lands­bank­ans á þessum tíma né fram­kvæmda­stjórar fengu auka­greiðsl­urn­ar.

Bank­inn rök­studdi greiðsl­urnar með því að þær væru til­komnar vegna tíma­bund­ins álags í starfi. Hins vegar var hvorki vísað til þeirra í ráðn­ing­ar­samn­ingum né voru gerðir sér­stakir skrif­legir við­aukar við ráðn­ing­ar­samn­inga vegna þeirra.

Auglýsing

Upp­haf máls­ins var að Lands­bank­inn til­kynnti Fjár­mála­eft­ir­lit­inu sjálfur um að hann væri með til skoð­unar hvort að greiðsl­urnar sam­rýmd­ust reglum um kaupauka­kerfi sam­kvæmt lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki.

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur byggt á þeirri skil­grein­ingu að starfs­kjör starfs­manna séu annað hvort föst starfs­kjör eða kaupaukar, sem sér­stakar reglur gilda um. Ekki sé um aðra flokka að ræða sem auka­greiðslur Lands­bank­ans gætu fallið und­ir.

Í nið­ur­stöðu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sem birt var í dag, segir að Lands­bank­inn hafi ekki sýnt fram á að til­teknar auka­greiðslur gætu talist til fastra starfs­kjara, þar sem end­an­leg fjár­hæð eða umfang lá ekki fyrir með nákvæmum hætti fyrir fram, og þær hafi því falið í sér kaupauka. Þá hafi legið fyrir að Lands­bank­inn var ekki með kaupauka­kerfi og greiðsl­urnar voru því ekki inntar af hendi á grund­velli slíks kerf­is. „Lands­bank­inn hf. hefði þar af leið­andi brotið gegn 57. gr. a fftl., 3. gr. reglna nr. 700/2011 og 3. gr. reglna nr. 388/2016, um kaupauka­kerfi, með því að hafa árunum 2014 til 2016 greitt hluta af starfs­mönnum sínum auka­greiðslur sem komu til við­bótar föstum launum þeirra án þess að það hafi verið gert á grund­velli kaupauka­kerf­is.“

Fjár­mála­eft­ir­litið horfði til þess, við mat á við­ur­lögum í mál­inu, að Lands­bank­inn hafði gert lík­legt að auka­greiðsl­urnar hefðu verið inntar af hendi vegna tíma­bund­ins álags í starfi. „Þá voru greiðsl­urnar óveru­legar sem hluti af heild­ar­launa­kostn­aði bank­ans á þeim árum sem voru til skoð­un­ar. Enn fremur sýndi bank­inn sam­starfsvilja og hafði, áður en nið­ur­staða máls­ins lá fyr­ir, horfið frá umræddu fyr­ir­komu­lagi við greiðslu álags­greiðslna og tekið upp vinnu­reglur sem miða að því að tryggja sam­ræmt verk­lag og betri skjölun með sam­þykki starfs­kjara­nefndar og aðkomu innri end­ur­skoð­anda.“

Með hlið­sjón af því var það nið­ur­staða eft­ir­lits­ins að ekki væri ástæða til að beita bank­ann við­ur­lögum vegna brots­ins, auk þess sem það telur að Lands­bank­inn hafi þegar gripið til full­nægj­andi úrbóta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent