Bandaríkin þrengja að valdaklíku Pútíns

Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna ákvað að beita valdaklíku Pútíns viðskiptaþvingunum.

Putin og Trump
Auglýsing

Banda­rísk stjórn­­völd hafa sam­þykkt við­skipta­­bann gegn sjö rús­s­­nesk­um auð­mönn­um og 17 hátt sett­um rús­s­­nesk­um emb­ætt­is­­mönn­­um. Í til­kynn­ingu frá Steve Mnuchin, fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, segir að aðgerð­irnar bein­ist að þessum hópi, þar sem hann sé inn­ar­lega í kjarna spilltrar valda­klíku í Rúss­land­i. 

Segir í til­kynn­ing­unni frá Mnuchin að aðgerð­irnar séu meðal ann­ars hluti af aðgerðum vegna afskipta Rússa af kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum 2016, sem Don­ald Trump vann og tók síðan við sem for­seti Banda­ríkj­anna, í jan­úar 2017.

Sjálfur hefur Trump marg ítrekað að ekk­ert óeðli­legt hafi átt sér stað, og Rússar hefi ekki haft nein afskipti af kosn­inga­bar­átt­unni. Hann hefur sagt að rann­sóknir á tengslum Rússa við fólk innan Banda­ríkj­anna, meðal ann­ars í fram­boði Trumps, séu hluti af mestu norna­veiðum í sögu Banda­ríkj­anna.

Auglýsing

Að þessu leyti er til­kynn­ingin frá fjár­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna að miklu leyti á skjön við mál­flutn­ing for­set­ans.

Aðgerð­irnar eru einnig hluti af víð­tækum refsi­að­gerðum gegn Rússum, vegna nethern­aðar Rússa, víða í heim­in­um.

Tólf fyr­ir­tæki í eigu auð­mann­anna, rús­s­­nesk­ur banki og út­flytj­end­ur rús­s­­neskra vopna eru meðal þeirra sem við­skipta­­bannið tek­ur til, að því er segir í til­kynn­ing­unni, sem breska rík­is­út­varpið BBC greinir frá



Meðal þeirra sem við­skipta­banið nær til - og fryst­ing á eignum í Banda­ríkj­unum einnig - eru Oleg Der­ipa­ska, einn kunn­ingja Vla­dimír Pút­­ins Rús­s­lands­­for­­seta og Paul Mana­­forts kosn­­inga­­stjóra Trumps. Der­ipaska hefur auðg­ast veru­lega á álf­ram­leiðslu og við­skiptum í áliðn­aði, en eignir hans hlaupa á millj­örðum Banda­ríkja­dala.

Su­­leim­an Kerimov og fjöl­­skylda hans eru einnig á lista þeirra sem við­skipta­banið nær til. Kerimov á eina stærstu gull­fram­­leiðslu Rús­s­lands. 

Al­ex­and­er Tor­s­hin, sem er inn­ar­lega í póli­tískum hring Pútíns, einnig á list­anum en hann er tal­inn hafa fjár­magnað veru­lega Sam­tök byssu­eig­enda í Banda­ríkj­unum (NRA), í gegnum skúffu­fé­lög.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent