Kvarta til ráðuneytisins vegna bæjarstjórnar Hafnarfjarðar

Tveir varabæjarfulltrúar Bjartrar framtíðar í Hafnarfirði vilja að sveitarstjórnarráðuneytið taki til athugunar tvo fyrrverandi flokksfélaga sína sem viku þeim úr nefndum og ráðum á fundi í gær. Miklar deilur innan flokksins og bæjarstjórnarinnar.

Guðlaug Borghildur
Auglýsing

Tveir vara­bæj­ar­full­trúar í Hafn­ar­firði, þau Borg­hildur Sölvey Sturlu­dóttir og Pétur Ósk­ars­son, hafa óskað eftir að sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið taki til umfjöll­unar ákvarð­anir Guð­laugar Krist­jáns­dóttur um setu í og úr bæj­ar­stjórn og hins vegar missi kjör­gengis og þá sam­hliða lausn frá störfum bæj­ar­full­trú­ans Ein­ars Birkis Ein­ars­son­ar.

Hefur lög­maður þeirra sent ráðu­neyt­inu form­legt erindi þessa efnis, að það taki málið til form­legrar athug­unar á grund­velli sveit­ar­stjórn­ar­laga þar sem mælt er fyrir um almennt stjórn­sýslu­eft­ir­lit ráð­herra með því að sveit­ar­fé­lög gegni skyldum sín­um. Verði málið ekki tekið til umfjöll­unar form­lega af ráðu­neyt­inu áskilja þau sér rétt til að leggja fram stjórn­sýslu­kæru vegna máls­ins.

Vilja þau meina að Guð­laug hafi farið í ótíma­bundið leyfi frá störfum á grund­velli ákvæðis sveit­ar­stjórn­ar­laga sem geri ráð fyrir fjar­veru í að minnsta kosti einn mánuð vegna for­falla. Var til­kynnt um for­föll Guð­laugar þann 14. mars en hún tók sæti sitt aftur í sveit­ar­stjórn­inni á fundi hennar í gær. Vilja þau Borg­hildur og Pétur meina að þar sem hún hafi verið styttri tíma en einn mánuð frá störfum stang­ist það á við laga­á­kvæð­ið.

Auglýsing

Síð­ara umkvört­un­ar­efni þeirra í erind­inu lýtur að kjör­gengi Ein­ars Birkis Ein­ars­son­ar. Þar vísa þau til þess að Einar sé með lög­heim­ili í Hafn­ar­firði á heim­ili systur sinn­ar. hann hins vegar búi í Kópa­vogi ásamt sam­býl­is­konu sinni. Í lögum um kosn­ingar til sveit­ar­stjórnar segir að kjör­gengur sé sá sem meðal ann­ars á kosn­inga­rétt í sveit­ar­fé­lag­inu en þar er gerður áskiln­aður um lög­heim­ili í sveit­ar­fé­lag­inu. Vilja þau að ráðu­neytið afli upp­lýs­inga frá Ein­ari um búsetu hans svo unnt sé að stað­festa hvort hann njóti enn kjör­gengis eða hvort leysa beri hann frá störfum sökum missi þess.

Hita­fundur í gær

Málið á sér nokkuð skraut­legan aðdrag­anda en Guð­laug og Einar Birkir sögðu sig nýlega úr Bjartri fram­tíð en þau hafa starfað í meiri­hluta með Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Þau munu starfa út kjör­tíma­bilið sem óháðr bæj­ar­full­trú­ar. Ástæða úrsagn­ar­innar var sögð vera sam­starfsörð­ug­leik­ar.

Í gær ákvað meiri­hlut­inn í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar síðan á hita­fundi að víkja Borg­hildi og Pétri úr nefndum og ráðum á vegum bæj­ar­ins, sem þau hafa setið í fyrir hönd Bjartrar fram­tíð­ar, og aðrir settir inn í stað­inn. Guð­laug lagði þetta til á bæj­ar­stjórn­ar­fund­inum í gær, en hún er for­seti bæj­ar­stjórn­ar.

Borg­hildur og Pétur hafa setið í skipu­lags- og bygg­ing­ar­ráði fyrir flokk­inn sem og hafn­ar­stjórn en þar var Pétur vara­mað­ur.

Í frétt Fjarð­ar­frétta af bæj­ar­stjórn­ar­fund­inum í gær kom fram að svo mik­ill hiti hafi verið á fund­inum að óskað hafi verið eftir fund­ar­hléi þar sem gestum var vísað út.  Í hléinu barst síðan mik­ill hávaði frá salnum og ljóst að bæj­ar­full­trúar öskr­uðu hvor á ann­an.

Til­lagan um til­færslur þessar í nefndum og ráðum voru sam­þykktar eftir hléið, en full­trúar Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna sátu hjá.

For­mað­ur­inn stígur inn

Björt Ólafs­dóttir for­maður Bjartrar fram­tíðar skrif­aði á stjórn­ar­síðu flokks­ins í dag að henni þykir atburða­rásin bæði dap­ur­leg og skringi­leg.

Því er ekki að neita að það er mér þung­bært að hafa eftir þessa atburða­rás. Hún er ekki sú sem ég hefði óskað fyrir Bjarta Fram­tíð. Þetta eru ekki þau stjórn­mál sem við viljum kenna okkur við. Það eru hins­vegar fram­boð, ýmist í burð­ar­liðn­um, eða komin fram sem eru okk­ar, eða okkar fólk er partur af sam­eig­in­legum eða óháðum list­um. Eftir allt sem á undan er gengið er ljóst að fram­boð í Hafna­firði er í upp­lausn. Þar er fólk þreytt eftir átök og rugl­ing og þau sem skip­uðu sæti á sam­eig­in­legum lista Bjartrar Fram­tíðar og Við­reisnar hafa dregið sig í hlé með miklum trega og eft­ir­sjá,“ segir Björt.

Eft­ir­far­andi hef ég sett inn á stjórn­ar­síðu Bjartrar Fram­tíðar rétt í þessu: Dap­ur­leg er atburða­rásin hjá Bjartri...

Posted by Björt Ólafs­dóttir on Thurs­day, April 12, 2018


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent