Íris mun leiða nýtt framboð í Vestmannaeyjum

Deilur milli fylkinga í Sjálfstæðisflokknum í Vestmannaeyjum hafa leitt af sér nýtt framboð. Miðstjórnarfulltrúi úr flokknum mun leiða óánægjuframboðið.

Íris Róbertsdóttir og vestmannaeyjar
Auglýsing

Íris Róberts­dótt­ir, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur ákveðið að leiða nýjan fram­boðs­lista í Vest­manna­eyjum í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um. Til­kynnt var um það fyrir helgi að stofnað hefði verið bæj­ar­mála­fé­lag og sam­hliða var skorað á Írisi að leiða það fram­boð.

Í stöðu­upp­færslu á Face­book segir Íris að hún hafi ákveðið að verða við þeirri áskorun að gefa kosta á sér til að leiða nýja list­ann. „Ég er stolt og þakk­lát fyrir það traust sem mér er sýnt með þess­ari áskor­un. Þessa ákvörðun hef ég til­kynnt for­svars­mönnum hins nýja bæj­ar­mála­fé­lags - Fyrir Heima­ey.“

Ég hef ákveðið að verða við þeirri áskorun að gefa kost á mér til að leiða nýjan fram­boðs­lista hér í Vest­manna­eyjum í...

Posted by Íris Róberts­dóttir on Sunday, April 15, 2018

Ákvörðun Írisar vekur athygli þar sem hún er flokks­bundin Sjálf­stæð­is­kona og hefur setið í mið­stjórn flokks­ins, en mikil ólga hefur verið á milli hópa innan flokks­ins í Vest­manna­eyj­um. Sam­kvæmt frétt Morg­un­blaðs­ins um málið í febr­úar eru til­drög þeirra deilna þær að óánægja var um að ekki skyldi haldið próf­kjör heldur raðað á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Vest­manna­eyj­um. Til­laga um próf­kjör var felld í full­trúa­ráði flokks­ins með 28 atkvæðum gegn 26 í jan­ú­ar. Í frétt Morg­un­blaðs­ins kom fram að for­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefði verið upp­lýst um deil­urn­ar.

Elliði tekur kröfu um vald­dreif­inu alvar­lega

Í síð­ustu viku var til­kynnt að Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri og odd­viti Sjálf­stæð­is­manna síð­ast­lið­inn 12 ár, verði í fimmta sæti á lista flokks­ins í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um, og mun þar af leið­andi ekki leiða list­ann.

Auglýsing
Í til­­kynn­ingu sagð­ist hann taka alvar­­lega þá umræðu sem hefur verið á meðal Sjálf­­stæð­is­­manna í Vest­­manna­eyjum að und­an­­förnu, um þörf­ina á vald­dreif­ingu. „Eftir að hafa leitt list­ann úr fyrsta sæti í 12 ár tek ég alvar­­lega umræðu um þörf­ina á vald­dreif­ing­u.  Ég get að mörgu leyti tekið undir þá skoðun að það fylgir því lýð­ræð­is­halli að vera í senn í örugg­asta sæt­inu, vera bæj­­­ar­­stjóra­efni, odd­viti og sá sem er með lang­­mestu reynsl­una. Þessu vil ég mæta með því að færa mig niður í fram­­boðs­­sæti sem að við lítum á sem sæti vara­bæj­­­ar­­full­­trú­a. Ég vil líka líta á það sem skref til að skapa aukna sátt að víkja sætis fyrir ungt og nýtt fólk sem ann­­ars hefði ef til vill orðið að víkja af vett­vangi bæj­­­ar­­mál­anna.  Ég kvíði því ekki að leiða list­ann sem vara­bæj­­­ar­­full­­trúi enda ríkir mik­ill ein­hugur hjá því góða fólki sem skipar fram­boðlist­ann. Saman ætlum við leiða Sjálf­­stæð­is­­flokk­inn til sig­­urs og gera góðan bæ enn betri á kom­andi kjör­­tíma­bil­i.“

Hildur Sól­­veig Sig­­urð­­ar­dóttir mun skipaa fyrsta sæti list­ans, en þetta er í fyrsta skipti í 20 ár sem kona skipar fyrsta sæti á lista Sjálf­­stæð­is­­manna í Eyj­­um.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent