Innflytjendur voru að jafnaði 16,5 prósent starfandi fólks árið 2017 eða 32.543 en á síðasta ári voru að jafnaði 197.094 starfandi á Íslandi. Af þeim voru konur 92.855 eða 47,1 prósent og karlar 104.239 eða 52,9 prósent.
Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar í dag.
Fjöldi starfandi innflytjenda hefur aukist jafnt og þétt síðan 2009 og hefur aldrei verið meiri.
Flestir með íslenskt lögheimili
Þegar horft er til búsetu kemur í ljós að árið 2017 voru starfandi með skráð lögheimili á Íslandi að jafnaði 190.909 á árinu eða 96,9 prósent allra starfandi, segir í fréttinni. Alls höfðu 163.660 lögheimili hér á landi og einhvern íslenskan bakgrunn eða 83,5 prósent. Af innflytjendum voru 27.249 með lögheimili á Íslandi eða 83,7 prósent en 5.295 höfðu ekki lögheimili á Íslandi eða 16,3 prósent.
Einstaklingur sem fæddur er erlendis og á foreldra og báða afa og báðar ömmur sem einnig eru fædd erlendis, telst innflytjandi samkvæmt aðferðum Hagstofunnar. Aðrir teljast hafa einhvern íslenskan bakgrunn.