Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, gerir athugasemdir við framsetningu fréttar Ríkisútvarpsins þar sem kemur fram að hann hafi greitt Viðari Garðarssyni rúmlega eina milljón króna úr eigin vasa vegna vinnu við kosningabaráttu fyrir hálfu öðru ári síðan. Segir enn fremur í fréttinni að Sigmundur Davíð hafi þá verið nýfallinn sem formaður Framsóknarflokksins. Þessu neitar Sigmundur Davíð í nýrri færslu á Facebook-síðu sinni.
Hann segir að viljandi sé sett fram villandi fyrirsögn og auk þess sé gefið í skyn í greininni að hann hafi greitt fyrir rekstur síðunnar Veggurinn.is. „Loks er gefið til kynna að ég hafi greitt fyrir vinnu sem var unnin þegar ég var „nýfallinn sem formaður Framsóknarflokksins”. Það er rangt. Sá útlagði kostnaður sem ég ábyrgðist fyrir flokkinn kom allur til á meðan ég var formaður hans og löngu áður en andstæðingar mínir í flokknum hófu sínar aðgerðir (og um það leyti sem þeir lýstu því yfir að ekki kæmi til greina að fara gegn mér og sögðu að ég væri að sinna því mikilvæga hlutverki að undirbúa kosningabaráttu flokksins),“ segir hann í færslunni.
Hann segist ekki hafa komið að stofnun vefsíðunnar og aldrei hafa boðist til að greiða fyrir síðuna eða fréttir á henni. Hann hafi heldur ekki verið beðinn um það.
Sigmundur Davíð segir aftur á móti að síðan hafi oft verið á sömu línu og hann og Framsóknarflokkurinn á þeim tíma í stórum málum eins og viðureigninni við vogunarsjóði, baráttunni við verðtryggingu, mikilvægi byggðamála o.fl. (og þ.a.l. á annarri línu en Rúv). „Síðan fjallaði líka mikið um þá sem hafa verið leiðandi í baráttunni fyrir breytingum í verkalýðshreyfingunni, lífeyrissjóði, orkumál og ýmislegt fleira. Og jú, ég man ekki betur en að síðan hafi verið gagnrýnin á Rúv. Þar liggur e.t.v. hundurinn grafinn.“
Jafnframt segist hann hafa sett upp síðuna panamaskjolin.is til að birta allar upplýsingar og svör við öllum spurningum um þau mál. Ástæðuna sem hann gefur fyrir því er sú að RÚV hafi ekki gert það og sé það mál ótengt þessu.
„Það kom ýmislegt áhugavert fram í réttarhöldunum í málinu sem vísað er til en það virðist enginn áhugi vera á því hjá „aðdáendaklúbbnum” sem hengdi „skotmarksmynd” af mér upp á vegg fréttastofunnar.
Svo segi ég eins og Dagur, er ekki hægt að birta skárri mynd af mér með fréttinni? (Þótt ég viðurkenni reyndar að í mínu tilviki gæti það verið erfitt),“ segir Sigmundur Davíð.
Þessir eru enn við sama heygarðshornið. Hér er viljandi sett fram villandi fyrirsögn og auk þess gefið í skyn í...
Posted by Sigmundur Davíð Gunnlaugsson on Tuesday, April 17, 2018