Dagur: Sterk staða í fjármálum borgarinnar

Borgarstjórinn í Reykjavík hafnar gagnrýni á fjármálastjórn meirihlutans í borginni.

Auglýsing

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, gefur lítil fyrir gagn­rýni á fjár­mál borg­ar­innar sem sett hefur verið fram af póli­tískum and­stæð­ingum hans.

Hann segir að núver­andi meiri­hluti hafi náð við­snún­ingi í rekstri borg­ar­innar eftir að hann hafi  þurft að taka tölu­vert á út af launa­hækk­un­um, ekki síst inn í skóla­kerf­inu og í grunn­þjón­ustu borg­ar­inn­ar. „Við erum að fara að kynna árs­reikn­ing í næstu viku. Hann sýnir áfram­hald­andi styrka stjórn og sterka stöðu. En það eru ekki nýjar fréttir fyrir þá sem fylgst hafa með fréttum um fjár­mál borg­ar­inn­ar.

Við náðum þessa mikla við­snún­ingi með rekstri Orku­veit­unnar og búum að því enn­þá. Það sama gildir um önnur fyr­ir­tæki borg­ar­innar þannig að ég er stoltur þegar ég horfi yfir reikn­ing­anna og horfi yfir árang­ur­inn og sam­starfið sem við höfum átt í meiri­hlut­an­um. Við fag­fólkið hjá borg­inni og sam­starfs­að­il­anna úti í fyr­ir­tækjum borg­ar­inn­ar.“

Þetta kemur fram í nýjasta þætti Kjarn­ans á Hring­braut sem var frum­sýndir í gær­kvöldi. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum í spil­ar­anum hér að ofan.

Reiknað með millj­arða afgangi í ár

A-hluti borg­­ar­inn­­ar, sem er sú starf­­semi hennar sem er að hluta eða öllu leyti fjár­­­mögnuð með skatt­­tekj­um, hefur verið í járnum á und­an­­förnum árum. Árin 2014 og 2015 var hún til að mynda nei­­kvæð upp á 16,4 millj­­arða króna. Það þýðir að borg­inni vant­aði þá upp­­hæð til að geta staðið undir rekstr­­ar­­kostn­aði A-hlut­ans. Vert er að taka fram að stærsta ástæða þess að hall­inn var jafn hár og raun ber vitni var sú að breyt­ingar á líf­eyr­is­skuld­bind­ingum á árinu 2015 gerði það að verkum að bók­­færð voru gjöld sem voru rúm­­lega tíu millj­­örðum krónum hærri en þau voru árið eft­­ir. Þrátt fyrir að líf­eyr­is­skuld­bind­ing­­arnar væru teknar út fyrir sviga þá var borgin samt sem áður að tapa millj­­örðum króna á ári.

Auglýsing
Þetta breytt­ist árið 2016 þegar afkoma hennar var jákvæð um 2,6 millj­­arða króna. Árið 2017 var gert ráð fyrir að rekstr­ar­af­gangur borg­ar­innar yrði um 500 millj­ónir króna og fjár­hags­á­ætlun reikn­aði með að hann verði 3,4 millj­arðar króna á árinu 2018. Hver end­an­leg nið­ur­staða í rekstri borg­ar­innar var í fyrra kemur í ljós í næstu viku þegar árs­reikn­ingur hennar verður birt­ur. Rekstr­ar­nið­ur­staðan á síð­an, sam­kvæmt rekstr­ar­á­ætl­un, að batna veru­lega á árunum 2019 til 2022 og vera þá lægst 5,6 millj­arðar króna árið 2019 og mest 10,8 millj­arðar króna.

Stór breyta í þeirri afkomu er áætluð tekju­aukn­ing vegna fast­­eigna­gjalda. Þau voru í heild 15,6 millj­­arðar króna árið 2016 en áætlað var að þau myndu skila 18 millj­­örðum króna í borg­­ar­­sjóð í fyrra. Það yrði tekju­aukn­ing á þeim lið upp á 2,4 millj­­arða króna á milli ára.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent