Vilja hækka framlög til dagforeldra um 50 milljónir króna á ári

Viðreisn kynnti stefnu sína fyrir borgarstjórnarkosningarnar í dag. Meðal stefnumála flokksins er að hækka framlög til dagforeldra og lækka fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði.

viðreisnográðhús
Auglýsing

Við­reisn vill hækka fram­lög til dag­for­eldra um 50 millj­ónir á hverju ári og lækka fast­eigna­gjöld á atvinnu­hús­næði úr 1,65 pró­sent niður í 1,6 pró­sent í tveimur skrefum á síð­ari hluta kjör­tíma­bils­ins. Þetta kom fram á fundi Við­reisnar þar sem stefnu­mál flokks­ins í Reykja­vík fyrir kom­andi kosn­ingar voru kynnt.

Með lækkun fast­eigna­gjalda á atvinnu­hús­næði verður Reykja­vík með þriðju lægstu gjöldin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og jafn há gjöld og Kópa­vog­ur. Þetta mun kosta borg­ar­sjóð 300 millj­ón­ir. 

Það sem meðal ann­ars má finna í stefnu flokks­ins er að þau vilja fjölga ung­barna­deildum og hafa sex leik­skóla opna yfir sum­ar­tím­ann. Við­reisn vill hækka laun kenn­ara um allt að 100 þús­und krónur og ætlar að veita 50 millj­ónum árlega í skóla­þró­un. 

Auglýsing

Þau vilja bæta almenn­ings­sam­göngur og styðja upp­bygg­ingu borg­ar­línu. Á háanna­tíma vilja þau að strætó að gangi á sjö og hálfrar mín­útu fresti á stofn­leiðum en einnig vilja þau fjölga hjóla­stíg­um. Við­reisn vill finna nýja stað­setn­ingu fyrir inn­an­lands­flug nálægt Reykja­vík en flug­völl­ur­inn verður áfram í Vatns­mýri þar til sú stað­setn­ing verður fund­in. Þau vilja stækka gjald­svæði bíla­stæða og lengja gjald­skyldu tím­ann. 

Flokk­ur­inn vill einnig selja mal­bik­unar Höfða og greiða upp skuldir tengdar því. Við­reisn gerir ráð fyrir tekjum af gistin­átta­gjaldi og aukna þjón­ustu ætla þau að fjár­magna með upp­færslu á gjald­skrám.

Borg­ar­full­trúar taka vaktir í síma­veri

Við­reisn vill að borg­ar­full­trúar taki vaktir í síma­veri og stefna á að stjórn­sýsla borg­ar­innar verði raf­ræn að fullu. Öllum umsóknum og fylgi­skjölum um bygg­ing­ar­leyfi á að vera hægt að skila raf­rænt og á svar að ber­ast innan 48 klukku­stunda um hvort umsóknin sé gild. Þau vilja stytta bið­tíma og auka gegn­sæi í umsókn­ar­ferli, ekki aðeins í atvinnu­geir­anum heldur fyrir alla þjón­ust­u. 

Stefna flokks­ins er að veita fleiri styrki til atvinnu­þró­unar og tók Pawel Bar­toszek dæmi um að hægt verði að sækja um styrk til að gera upp atvinnu­hús­næði sem hefur staðið autt lengi. Við­reisn hygg­ist veita 30 millj­ónum króna árlega í sam­keppn­is­styrki í atvinnu­þróun yfir þriggja ára tíma­bil, 2019-2021.

Þá vilja þau enn fremur fjölga félags­legum leigu­í­búðum í Reykja­vík um 350 og sér­tækum íbúðum fyrir fatl­aða um hund­rað á kjör­tíma­bil­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent