Bláa lónið vísar fullyrðingum Gray Line á bug

Bláa Lónið hf. vísar fullyrðingum forráðamanna Gray Line um samkeppnishindranir af hálfu Bláa Lónsins hf. alfarið á bug í tilkynningu frá fyrirtækinu. 15 manns verður sagt upp hjá Gray Line um næstu mánaðamót.

blaa-loni_15270025102_o.jpg
Auglýsing

Bláa Lónið hf. vísar full­yrð­ingum for­ráða­manna Gray Line um sam­keppn­is­hindr­anir af hálfu Bláa Lóns­ins hf. alfarið á bug. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Bláa lón­in­u. 

Gray Line á Íslandi til­kynnti í gær að fyr­ir­tækið myndi segja upp 15 starfs­mönnum fyrir næstu mán­aða­mót vegna sam­dráttar í verk­efn­um, þar sem ákveðið hafi verið að hætta með áætl­un­ar­ferðir í Bláa Lón­ið. 

Í til­kynn­ingu Bláa Lóns­ins hf. segir að Gray Line hafi í krafti stærðar sinnar notið þeirrar sér­stöðu und­an­farin ár, umfram flesta aðra sam­keppn­is­að­ila þeirra á ferða­þjón­ustu­mark­aðn­um, að hafa fengið að selja aðgang að Bláa Lón­inu í gegnum raf­ræna bein­línu­teng­ingu við kerfi Bláa Lóns­ins hf. Fjöl­margir ferða­þjón­ustu­að­ilar hafi, þrátt fyrir sér­stöðu Gray Line að þessu leyti, stundað hóp­ferða­akstur til og frá Bláa Lón­inu bæði með og án þess að selja aðgang að Bláa Lón­inu sam­hliða. Með því að fella niður raf­ræna bein­línu­teng­ingu Gray Line við kerfi Bláa Lóns­ins hf. sé þannig þvert á móti verið að jafna stöðu Gray Line og ann­arra aðila á ferða­þjón­ustu­mark­aði sem eru í sam­keppni við Gray Line.

Auglýsing

„Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Bláa Lónið hf. sjálft hafið áætl­un­ar­ferðir í Bláa Lón­ið. Ákvörðun þar að lút­andi snýr fyrst og fremst að því að bjóða víð­tæk­ari þjón­ustu, tryggja sam­ræmi og bæta upp­lifun gesta, en er jafn­framt ráð­stöfun sem ætlað er að jafna flæði gesta og auka sam­þætt­ingu og hag­ræð­ingu í rekstri Bláa Lóns­ins hf.

Þær breyt­ingar sem hér um ræðir hafa legið fyrir í langan tíma og stjórn­endum Gray Line að fullu kunn­ar.

Hér eftir sem hingað til er öllum ferða­þjón­ustu­að­ilum frjálst að stunda akstur til og frá Bláa Lón­inu og mun Bláa Lónið hf. áfram kapp­kosta að eiga gott sam­starf við fjöl­marga sam­starfs­að­ila sína í íslenskri ferða­þjón­ustu“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent