Segir nauðsynlegt að birta niðurstöður til að endurvekja traust

Fyrrverandi félags- og jafnréttismálaráðherra segir eðlilegt fyrir þingið að kalla eftir niðurstöðum úr rannsóknum á störfum fyrrverandi forstjóra Barnaverndarstofu.

Þorsteinn Víglundsson
Þorsteinn Víglundsson
Auglýsing

Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra og þing­maður Við­reisn­ar, segir að ekki sé unnt að end­ur­vekja traust í mála­flokknum nema birta nið­ur­stöður rann­sóknar á störfum Braga Guð­brands­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu. Þetta kom fram í Silfr­inu í morg­un.

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefur enn ekki birt opin­ber­lega efn­is­legar nið­ur­stöður úr rann­sóknum á störfum Braga en komið hefur fram í máli Ásmundar Ein­ars Daða­son­ar, ráð­herra mála­flokks­ins, að þeim hafi lokið með þeirri nið­­ur­­stöðu að ekki hafi verið til­­efni til áminn­ingar og að Bragi hafi ekki brotið af sér í starfi.

Þor­steinn segir jafn­framt að það hafi vakið furðu hans að málið skyldi ekki leitt til lykta. Komið hafi upp trún­að­ar­brest­ur, hann rann­sak­aður en nið­ur­stöð­urnar ekki birt­ar. Eðli­legt sé að þingið kalli eftir þessum nið­ur­stöð­um. Hann bendir á að víst verið sé að tefla Braga fram sem fram­bjóð­anda Íslands til Barna­rétt­­ar­­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna þá sé verið að lýsa því yfir að ekk­ert hafi komið fram í þessum gögn­um, að allt hafi verið í lagi.

Auglýsing

Í sam­tali við Stund­ina seg­ist Þor­steinn telja það gríð­ar­lega alvar­legt ef Ásmundur Einar hafi ekki greint nefnd­inni frá mál­inu með réttum hætti og haldið upp­lýs­ingum vís­vit­andi leynd­um. „Sér í lagi í ljósi yfir­lýs­inga sinna í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma tveimur dögum fyrr um að það væri mjög mik­il­vægt að nefndin færi mjög ítar­lega yfir þetta mál. Hann verður að standa skil á því gagn­vart þing­inu hver hin efn­is­lega nið­ur­staða ráðu­neyt­is­ins var og hverju það sætir að hann hafi ekki greint þing­mönnum frá þessu á þessum tíma­punkt­i.“

For­maður vel­ferð­ar­nefndar gagn­rýnir ráð­herra

Hall­­dóra Mog­en­­sen, for­­maður vel­­ferð­­ar­­nefndar Alþingis og þing­­maður Pírata, ­boð­aði fé­lags- og jafn­­rétt­is­­mála­ráð­herra á opinn fund í vel­­ferð­­ar­­nefnd sem hald­inn verður á morg­un, mánu­dag. Í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun gagn­rýnir Hall­dóra ráð­herra fyrir að hafa dregið það langt umfram lög­bund­inn frest, að gefa vel­ferð­ar­nefnd upp­lýs­ingar og nið­ur­stöður ráðu­neyt­is­ins í máli Braga. Þetta áréttar hún í Silfr­in­u. 

„Hall­dóra segir að það sé rangt að ráð­herra hafi haft frum­kvæði að því að veita upp­lýs­ing­arn­ar, þvert á móti hafi þau verið þrjú sem köll­uðu eftir upp­lýs­ing­un­um. Beðið var um öll gögn í máli umkvart­ana barna­vernd­ar­nefnda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna Braga, for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, sem er í árs­leyfi. Upp­lýs­ing­arnar hafi aftur á móti komið mán­uði seinna,“ segir í frétt Vísis um mál­ið. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent